Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 49
45
að þingið vísi þeim til ráðsins til athugunar. Því hefur verið
iireyft, að ráðið ætti að útkljá það, hvort aðili fullnægði hin-
um einstöku inntökuskilyrðum. Ef þetta væri rétt, þá leiddi
af þvi, að einróma atkvæði allra meðlima ráðsins þyrfti til
þess, að aðili yrði tekinn í handalagið. Einn einasti þeirra
félaga, sem sæti skipa i ráðinu, gæti þá varnað umsækjanda
inngöngu í handalagið. Þetta hryti alveg í hága við 2. mgr.
1. gr. sm., sem fær þinginu þetta mál i hendur og ákveður,
að % atkvæða þar þurfi til inntöku nýrra félaga í banda-
lagið. Þessi kenning um afskipti ráðsins af þessum málum
hefur ekki heldur fengið nokkurn byr. Þingið eitt sker úr
öllum atriðum þessi mál varðandi. Sjá þó 9. gr. III. að neðan.
Það vísar þeim fyrst til einnar af hinum föstu nefndum sín-
um (venjulega til fyrstu nefndar, sem athugar lögfræðileg
og stjórnskipuleg efni). Nefndin gefur svo álit sitt, og síðan
er málinu ráðið til lykta með venjulegum hætti á þinginu.
Eins og sagt var, þarf % atkvæða til upptöku nýrra félaga,
og gilda reglurnar í 20. gr. þingskapa þingisns um atkvæða-
greiðsluna. Jafnskjótt sem nýr félagi liefur verið tekinn í
bandalagið, getur hann tekið sæti á þingi þess og tekið þátt
í athöfnum þess með sama liætti sem aðrir félagar.
IV. Þeir aðiljar, sem í Þjóðabandalagið hafa gengið sam-
kvæmt 2. mgr. 1. gr. sáttmálans, eru þessir:
1920: 1. Austurríki, 2. Búlgaría, 3. Costa Rica, 4. Luxem-
burg, 5. Albanía, 6. Finnland.
1921: 7. Estland, 8. Lettland, 9. Lithauen.
1922: 10. Ungverjaland.
1923: 11. írland, 12. Abj'ssinía.
1924: 13. San Domingo.
1926: 14. Þýzkaland.
1931: 15. Mexiko.
1932: 16. Tyrkland, 17. Irak.
Af þessum ríkjum hefur Costa Rica sagt sig úr bandalag-
inu 1925, og hefur því farið alfarin 1927. Mexiko tilkynnti úr-
sögn sína 3. des. 1932, en tók þó þátt í störfum ráðsins fyrra
lduta árs 1933. Ef þessi félagi heldur úrsögninni til streitu,
fer hann að fullu 3. des. 1934. Þýzkaland kvaðst fara úr því
14. okt. 1933, og fer því að fullu 14. okt. 1935.
V. I árslok 1932 voru þá eftirtalin ríki, hjálendur og ný-
lendur i Þjóðahandalaginu, og áttu að greiða til þess sam-
kvæmt fjárliagsáætlun bandalagsins fyrir 1933 svo margar
gjaldeiningar hvert sem hér segir: