Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 107
103
ópíumnefndar (bureau du comité central permanent de
l’opium), þar sem 5 menn starfa.
4. Afvopnunardeildin (section du désarmement). Þar eru 14
starfsmenn. Þessi deild er til aðstoðar föstu liermálanefnd-
inni, nefndum þeim, er undirbúa milliríkjastefnu í afvopn-
unarmálum og á að undirbúa samninga varðandi liergagna-
gerð einstakra manna. Loks skal deildin athuga herbúnað
Þýzkalands, Austurríkis, Búlgaríu og Ungverjalands sam-
kvæmt viðeigandi greinum i friðarsamningunum.
5. Upphjsingadeildin (section d’information). í deild þess-
ari starfa 52 menn, að miklu lejdi fyrrverandi blaðamenn frá
ýmsum löndum. Þessi deild semur tilkynningar um störf
bandalagsins og greinir um það og veitir blaðamönnum og
öðrum upplýsingar um þau. Deildin hefur nokkurs konar
föst útibú í París, London, Róm, Tokio og Berlín. Ennfrem-
ur hefur deildin fasta bréffélaga í mörgum öðrum löndum,
einkum i Mið- og Suður-Ameríku, og i sambandi þar við er
sérstök skrifstofa í Genf, er annast sambandið við rómönsku
löndin í Ameriku, með 3 starfsmönnum.
6. Fjármáladeildin (section financiére et des recherches
économiques). Þar vinna 43 menn. Hún er til aðstoðar fjár-
málastofnuninni og sérnefndum hennar, fjármálastefnum og
2. nefnd þingsins. Deild þessi gefur og út fjölda rita um fjár-
málefni, svo sem mánaðarlegar hagskijrslur (Bulletin men-
suel de statistique) á frönsku og ensku, skgrslu um þjóð-
banka og peningagengi síðan fyrir stríð (memorandum sur
les monnaies et des hanques centrales), skýrslu um fjárhagi
nálega allra ríkja í Evrópu og margra annara ríkja (memor-
andum sur les finances ])ubliques), skýrslu um útgjöld til
hernaðar (dépenses budgetaires pour la défence nationale),
skýrslu um greiðslujöfnuð og verzlunarjöfnuð fjölda ríkja
(memorandum sur les balances des paiements et sur les
balances du commerce extérieur), árlegar alþjóða hagskýrsl-
iur (annuaire statistique international), skýrslur um fram-
leiðslu og verzlun (memorandum sur le production et le
commerce) og skýrslur um verzlunarbanka (memorandum
sur les banques commerciales).
7. Þjóðhagfræðadeild (section des relations économiques).
Þar eru starfsmenn 21. Hún er þjóðhagsstofnun bandalagsins,
sérstökum nefndum og milliríkjastefnum um þjóðhagsmál,
svo og 2. nefnd bandalagsins, til aðstoðar. Hún gerir skýrslur
um störf nefnda og milliríkjastefna um þessi mál o. fl.