Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 56
52
rita eða staðfesta sjálfan sáttmála bandalagsins. Með inn-
göngu sinni í bandalagið taka þeir á sig allar félagsskyldurn-
ar. Sbr. þó að framan um Svissland. Skvldunum má skipta
með ýmsum hætti, eins og réttindunum.
A. Skylda til að taka þátt í liiniim eiginlegu störfum banda-
lagsins. 1 sáttmálanum segir ekki um skyldu félaga í þessum
efnum, og því eru ekki lögð nein viðurlög við broti á lienni,
nema ef vera mætti, að 4. mgr. 16. gr. gæti orðið notuð. Það
hefur verið gert ráð fyrir því, að félagar bandalagsins mundu
jdirleitt taka þátt í störfum þess. f sáttmálanum er ekki held-
ur sagt, að ákveðin tala félaga þurfi að hafa sent fulltrúa
á þing eða í ráð bandalagsins til þess að lögleg ályktun verði
gerð, og ekki er þess lieldur getið í XIII. kafla Vers. samning-
anna, liversu margir þurfi að bafa sent fulltrúa á vinnumála-
þingið til þess að það sé ályktunarfært. í þingsköpum ráðs og
þings liafa verið settar reglur um þetta, sbr. 8. gr. þingskapa
ráðs og 4. mgr. 19. gr. þingskapa þings. Þótt nú sjálfsagt megi
segja, að félagar Þjóðabandalagsins séu skvldir til að taka
þátt í störfum bandalagsins á þingi og i ráði þess m. fl., þá
er sú skylda ef til vill fremur siðferðilegs eðlis en lagalegs,
því að ekki verður hún beinlínis knúð fram. í framkvæmd-
inni liefur það ekki komið að sök, þótt sáttmálinn liafi eng-
in ákvæði liaft um þessar skyldur. Flestir félagar bandalags-
ins hafa rækt skvldur sínar til liluttöku í störfum þess óað-
finnanlega. Þingið hefur yfirleitt verið vel sótt, nema hvað
sum smáríkin í Mið- eða Suður-Ameríku hafa ekki allt af sent
fulltrúa þangað. Argentína tók ekki heldur um langt skeið þátt
i störfum bandalagsins, en er nú bvrjuð á því aftur. Meðlimir
ráðsins hafa víst jdirhöfuð sótt fundi þess vel. Japan hefur
ekki komið þar síðan í janúar 1933, enda hafði þetta riki til-
kynnt áform sitt um að ganga úr Þjóðahandalaginu 27.
marz s. á.
B. Skylda til að greiða áudeg tillug til Þjóðabandalagsins.
Sjá um þessa skyldu 7. gr. V. og 17. gr. III.
C. Skyldur þær, er livila á félögum bandalagsins varðandi
friðarmálin o. fl. Með því að merkasta verkefni Þjóðabanda-
lagsins er að vernda friðinn milli ríkja, þá er eðlilegt, að
margar skyldur félaga þess séu af því sprottnar. Og þær
skyldur kann stundum að verða. erfiðast og jafnvel kosta
mesta sjálfafneitun að efna. Það er auðséð, að höfundar sátt-
málans liafa heint sérstaklega athvglinni að þessum skvldum,
enda hafa þeir sett heinlínis í samband við þær ákvæðið i 4.