Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 124
120
deildarstjórar 41 þús., „tekniskur“ ráðunautur 35 þús. o.
s. frv. Starfsmenn skrifstofunnar, sem eru um 400, skal velja
af mismunandi þjóðernum, og skulu jafnan vera konur að
einhverju leyti, 395. gr. Vers.samn. Skrifstofan safnar gögnum
um mál stofnunarinnar og vinnur úr þeim, undirbýr dagskrá
þingsins, gefur út á frönsku og ensku og fleiri málum, er ráð-
ið ákveður, tímarit um vinnumál o. s. frv.
Skrifstofa þessi er allmikið bákn, þótt ekki komist bún til
jafns við skrifstofu Þjóðabandalagsins sjálfs. Hún skiptist í
skrifstofu forstjórans og fjórar deildir.
Skrifstofa forstjórans (Cabinet) undirbýr mál, er leggja
skal fyrir forstjórann, afgreiðslu á ákvörðunum hans og eft-
irlit með framkvæmd þeirra.
Fyrsta deild (Division administrative) liefur framkvæmd-
armál stofnunarinnar í þrengri merkingu með höndum. Henni
er skipt i tvær skrifstofur (sections). Önnur fer með stjórn
stofnunarinnar almennt, svo sem fjármál, eftirlit og skipun
skrifstofunnar o. s. frv. Hin annast þýðingar og bóka- og út-
gáfustarfsemi liennar o. s. frv.
Önnur deild (Division diplomatique) annast bréfaskipti
varðandi skýringu og framkvæmd á ákvæðum XIII. kafla
Vers.s., undirbýr vinnumálaþingið, aðstoðar vinnumálaráð og
vinnumálaþing að öðru leyti, hefur með liöndum mál um
staðfestingu og skýringu samningsfrumvarpa þingsins, vinnu-
málefni í nýlendum, verndarlöndum, mandötum, þrælaliald
o. s. frv. Henni er aftur skipt í fjórar undirdeildir (sections),
er liver annast ákveðin störf þessarar tegundar.
Þriðja deild (Division des recherches). Hún hefur með
höndum hagskýrslur vinnumála, vinnumálalöggjöfina, at-
vinnuleysismál, fólksflutninga, tryggingamál, landbúnað,
beilbrigðismál, menntamál o. s. frv. Deild þessari er aftur
skipt í undirdeildir (sections), 10 að tölu, er bver liefur sitt
verkefni. Þar af hefur ein með höndum rannsókn á liögum
Sovj et-Rússlands.
Fjórða deild (Division des relations et des renseignements)
liefur með höndum bréfaskiptin við sambönd vinnuveitenda
og vinnuþiggjenda, samvinnufélög og alþjóðastofnanir, er
hafa með liöndum efni varðandi vinnumál. Þessi deild á líka
að athuga tímarit um vinnumál og safna úr þeim því, er máli
þykir skipta o. s. frv. Þessari deild er skipt í tvær undir-
deildir (sections).
Vinnumálastofnunin hefur, eins og Þjóðabandalagið, all-