Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 105
101
nefndinni, er hefur kerfun þjóðaréttar að verkefni. Skrifstof-
an sér einnig um skrásetningu og útgáfu milliríkjasamninga
samkvæmt 18. gr. sm.
C. Skrifstofa vara-framkvæmdarstjóra (bureau du secré-
taire général adjoint). Þar starfa 5 lægriháttar starfsmenn,
og er unnið þar í þágu liinna „teknisku“ hjálparstofnana
bandalagsins.
D. Skrifstofa undir-framkoæmdarstjóra (bureau du sous-
secrétaire général). Þessi skrifstofa hefur með liöndum innri
stjórn skrifstofunnar. Á sjálfri skrifstofunni vinna 17 menn,
en undir liana heyra:
1. Fjárhirzlan (trésorerie). Þar er skrifstofa féhirðis, skip-
uð, auk hans, 4 starfsmönnum, og undirbýr hún fjárhags-
áætlun handalagsins og hefur umsjón með fjárreiðum þess.
Undir henni eru aftur tvær skrifstofur: Gjaldkeraskrifstof-
an, skipuð 9 starfsmönnum, og Endnrskoðunarskrifstofan,
skipuð 8 mönnum.
2. Skrifstofa fyrir innri málefni aðalskrifstofunnar (ser-
vices interieurs). Hún vinnur í þarfir nefnda og milliríkja-
stefna. Henni er skipt í tvær deildir. Starfa 10 menn í skrif-
stofu þessari. I sambandi við hana standa aðstoðarskrifstof-
ur í Paris og London, er lialda stöðugu sambandi við aðal-
skrifstofu bandalagsins í Genf.
3. Skrifstofa fyrir almennan rekstur skrifstofu Þjóða-
bandalagsins (services centraux). Henni er skipt í þessar
undirdeildir:
a. Hraðritunardeitd, sem aftur greinist í tvær undirdeildir
og er skipuð 74 starfsmönnum.
b. Fjölritunardeild, sem er skipuð 33 starfsmönnum.
c. Skjaladeild, skipuð 34 starfsmönnum. Þar eru merkt og
flokkuð öll skjöl, sem ætluð eru þingi, ráði eða til skrifstof-
unnar eiga að fara, til meðlima bandalagsins eða annara.
Öll skjöl eiga að fara gegnum þessa deild.
d. Deild fyrir ýms störf (services divers), svo sem læknis-
þjónusta, símaþjónusta, póstþjónusta, teiknarar, 11 starfs-
menn alls.
4. Skrifstofa skjalþýðenda og túlka (services des docu-
ments), með tilheyrandi hraðriturum, 40 starfsmenn alls.
Skrifstofan skiptist í enska og franska undirdeild.
5. Skrifstofa fyrir birtingu rita og prentun. Þar vinna 39
starfsmenn.
6. Skjalasafnið. Þar vinna 21 starfsmaður. Þar eru skrá-