Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1933, Blaðsíða 119
115
Þess vegna stendur og fellur vinnuraálastofnunin eftir gild-
andi reglum meö Þjóðabandalaginu. Og jafnvel þótt haldið
sé fram fullu sjálfstæði vinnumálastofnunarinnar gagnvart
Þjóðabandalaginu, þá getur ekki lijá því farið, að þing og
ráð þess eða þær stofnanir aðrar, sem sýsla með fjárhagsmál
handalagsins, geti haft nokkurt eftirlit með fjárreiðum henn-
ar, enda ber forstjóri vinnumálaskrifstofunnar ábyrgð á fjár-
meðferð hennar gagnvart framkvæmdarstjórn handalagsins.
Ráð handalagsins Iiefur nokkur afskipti af vinnumálastofn-
uninni. Það ákveður, ef með þarf, liverir meðlimir bandalags-
ins skuli hafa fulltrúa í vinnumálaráðinu, 393. gr. Vers. samn.
I 392. gr. þeirra segir, að vinnumálaskrifstofan sé ein af
stofnunum Þjóðabandalagsins, og í 427. gr. segir, að liinir háu
samningsaðiljar hafi ákveðið að koma á fót vinnumálastofn-
un, tengdri við (associé á) stofnanir Þjóðabandalagsins. í
sambandi við vinnumálastofnunina eru framkvæmdarstjóra
Þjóðbandalagsins fengin ýms verkefni. Yíðtækast í því er
ákvæði 398. gr. Vers. samn., er segir, að vinnumálaskrifstof-
an geti krafizt aðstoðar lians við meðferð allra mála, þar
sem hann geti veitt slíka aðstoð. Hann er oft milliliður milli
vinnumálastofnunar og meðlima hennar, þar sem húast
liefði mátt við, að forstjóri vinnumálastofnunar væri það,
sjá 4., 6. og 7. mgr. 405. gr. og 2. mgr. 407. gr. Vers.samn.
(framkvæmdarstjórinn fær samningauppköst vinnumála-
þingsins og meðlimir vinnumálastofnunar senda honum svör
sin), 415. gr. (skýrslu rannsóknarnefnda um ágreining skal
senda framkvæmdarstjóra, en hann sendir hana til viðkom-
andi ríkisstjórnar og liún honum aftur undirtektir sínar).
Hann lætur skrásetja sanminga, er á komast að tilhlutan
vinnumálaþingsins, milli ríkja, 406. gr. og 2. mgr. 407. gr.
Vers.samn. Hann skipar rannsóknarnefnd eftir 420. gr. og í
upphafi var öllum erindum viðvikjandi vinnumálastofnun-
inni beint til lians, sbr. 424. gr. Vers. samn.
Það virðist nú viðurkennt hvarvetna, að vinnumálastofn-
unin sé ein af stofnunum Þjóðabandalagsins, en hún nýtur
sjálfstjórnar á borð við Haagdóminn. Samvinna er um ýms
mál milli annara stofnana Þjóðabandalagsins og vinnumála-
stofnunarinnar.
III. Meðlimir vinnumálastofnunarinnar eru, sem fyrr segir,
allir meðlimir Þjóðabandalagsins. En liér kemur fram nokk-
ur greinarmunur milli Þjóðabandalagsins og vinnumála-
stofnunarinnar, því að svo er talið, að aðili geti verið með-