Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 10
8
um 30—40 smálestir voru gerðir út frá Djúpavik. Aflaðist illa, út-
gerðarkostnaður mikill, tíðar bilanir, einkum þess bátsins, er kom um
áramót beint úr íslenzkri skipasmíðastöð. Nú seldur. Seinna part vertíð-
ar stundaði annar báturinn jafnframt hákarlaveiðar og aflaði vel. Frá
Gjögri er róið allt árið á um 3—6 smátrillum, en afli ekki mikill, enda
rær ekki nema einn maður á hverri trillu. Varla mun það teljandi,
að bændur stundi sjósókn með búskap. Það, sem af er vetrar, hafa
gæftir verið slæmar og aflazt illa. Garðrækt nær engin, og virðast
hreppsbúar hafa ótrú á henni. Síldarverksmiðjur á Eyri og Djúpavík
reknar með miklu tapi. Komu um 1000 mál til hvorrar um sig. Á
Djúpavík var fullskipað starfsliði, en að hálfu leyti á Eyri, og var nær
ekkert fyrir þetta fólk að gera. Nokkuð unnið að vegalagningu og hús-
byggingum. Afkoma hjá almenningi mun þó teljast víðast hvar í
meðallagi.
Hólmavikur. Naumast hafði snjó leyst af túnum í júnímánuði. All-
flestir bændur heylausir, en felli afstýrt með aðkeyptu heyi og fóður-
bæti. Sumarið sæmilegt, en grasspretta víða rýr á ræktuðu landi, sem
víða var stórskemmt af kali. Aflahlutur sjómanna lítill vegna sífellds
gæftaleysis, síldveiðibrests og fiskleysis síðara hluta árs. Bygginga-
framkvæmdir bættu nokkuð atvinnulífið sumarmánuðina, en afkoma
alls almennings mun hafa verið með verra móti.
Hvammstanga. Vetur mjög erfiður. Vorið hart og kalt. Frost og
snjóar allt fram um miðjan júní. Olli þetta talsverðum erfiðleikum
og tjóni vegna óvenjumikilla fóðurkaupa, einnig nokkurs lamba-
dauða o. s. frv. En eigi að síður var afkoma manna yfirleitt mjög
sæmileg. Bati var lika skjótur og góður, þegar hann loks kom.
Grasspretta sizt lakari en venjuleg'a, heyfengur vel í meðallagi og upp-
skera úr görðum slíkt hið sama, þótt seint væri að unnið. Afkorna
fólks á Hvammstanga einnig mjög sæmileg.
Blönduós. Veturinn í meðallagi, en vorið mjög kalt. Um 18. júm
breyttist veðráttan mjög til batnaðar, og var sumarið gott og haustið
dágott. Afkoma mátti og heita góð, miðað við flesta aðra landshluta,
afurðaverð gott, fastur markaður fyrir mjólk, allmikið um byggingar-
framkvæmdir og vegagerðir, þar á meðal byrjað á stórbrú yfir Blöndu
utan Blöndudalshóla. Fjárskiptum vegna mæðiveikinnar var lokið i
öllu héraðinu og féð keypt aðallega af Vestfjörðum. Útgerð fór heldur
vaxandi í Höfðakaupstað og gekk sæmilega, en síldin brást þar sem
annars staðar.
Sauðárkróks. Vetur frá nýári frekar harður og snjóasamur, en með
vorinu harðnaði þó fyrst verulega. Frá því um sumarmál og fram til
maíloka voru hríðar og snjókoma, og kuldar héldust fram yfir miðjan
júní. Bændur höfðu samt flestir nægileg hey, enda var héraðið að
mestu fjárlaust. Spretta og nýting á heyjum góð. Heyafli sæmilegur.
Haustið og veturinn fram til nýárs var tíðarfar mjög gott. Afkoma
fólks í sveitum mun hafa verið sæmileg, þrátt fyrir það að fjárlaust
var vestan megin Héraðsvatna, enda hafa margir stækkað kúabú sin.
Atvinna nægileg á Sauðárkróki um vorið og sumarið og fram á haust,
mest við nýju rafveituna, lagningu innanbæjarkerfisins. Talsverð at-
vinna var einnig við hraðfrystihúsið.