Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 133
131
Hofsós. Á árinu rættist úr ljósmóðurvandræðunum, og eru nú öll
ljósmóðurumdæmin skipuð.
Akureijrcir. Engar breytingar hafa orðið á skipun heilbrigðisstarfs-
manna læknishéraðsins aðrar en þær, að á árinu fluttist Ólafur læknir
Sigurðsson alfarinn burt úr bænum og fór þá til Englands til fram-
haldsnáms í lyflæknisfræði.
Seyðisfi. Ljósmóðurskipti urðu 1. maí í Seyðisfjarðarumdæmi. Guð-
i'ún Karlsdóttir lét af störfum, en við tók Líneik Gísladóttir, sem verið
hafði aðstoðarljósmóðir í Landsspítalanum um 3 ára skeið.
Djúpavogs. Ljósmóðir engin í Geithellahreppi. Öldruð Ijósmóðir
gegnir starfinu í Búlandshreppi og eins í Breiðdal, en báðar hafa sagt
af sér fyrir löngu.
Vcstmannaegja. Jóna Kristinsdóttir Ijósmóðir sagði af sér frá miðj-
um júlí þ. á. Guðrún Ólafsdóttir Ijósmóðir var skipuð í hennar stað
1- október. Sótthreinsunarmaður er nýskipaður, Gunnar Hlíðar.
3. Sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir.
A. Sjúkrahús. Töflur XVII—XVIII.
Sjúkrahús og sjúkraskýli teljast á þessu ári samkvæmt töflu XVII
49 alls og er óbreytt tala frá síðast liðnu ári.
Rúmafjöldi allra sjúkrahúsanna telst 1346. Koma þá 9,5 rúm á
hverja 1000 íbúa. Ahnennu sjúkrahúsin teljast 43 með 800 rúmum
samtals, eða 5,7%0. Rúmafjöldi heilsuhælanna er 257, eða 1,8%0.
Rúmafjöldi geðveikrahælisins á Kleppi hefur lengi verið talinn
óbreyttur, 130 rúm, eða síðan Nýi Kleppur var reistur (1929) og þar
hl nú, að rúmin eru talin 205. Fyrir ýmsa hagræðingu húsakynnanna
siðast liðinn áratug, án annarra nýbygginga en hjúkrunarkvenna-
hústaða fyrir 24 hjúkrunarkonur (1947), hefur rúmum smátt og
smátt fjölgað upp í þessa tölu, og hefði riimafjöldinn að réttu lagi
mátt teljast í árslok 1940: 150, 1942: 175 og 1948: 205. En svo er það
Um önnur sjúkrahús, að þau eru iðulega látin rúma fleiri sjúklinga
en þau eru skráð rúma.
Læknar láta þessa getið:
Akranes. Sjúkrahús bæjarins var nærri fullgert um áramót og er
fullsmíðað, þegar þetta er ritað. En húsbúnað og lækningatæki vantar.
hykir bæjarbúum að vonum þungt að horfa á þetta tveggja milljóna
hróna hús fullgert, en ekki komið að notum. Mun því valda skortur
a lánsfé og gjaldeyrisleyfum.
Borgarnes. Sjúkrahúsmálinu miðar áfram að því leyti, að fé safn-
ast jafnt og þétt í spítalasjóð. Borgfirzk ljóð, sem gefin voru út til
styrktar spítalasjóði, gefa nokkrar tekjur.
Búðardals. Sjúkrahúsið ekki starfrækt á árinu af sömu ástæðum og
undanfarin ár. Fleiri ástæður bætast og við, meðal annars, að ekkert
'^ðhald fer fram á húsinu, og er það nú svo illa farið (gluggar og þess
hattar), að ekki er hættulaust að hafa sjúklinga þar þess vegna.
, * hálfrar aldar gamla íbúðarhús gengur sem eðlilegt er óðuni úr
ser, enda ekkert viðhald á því heldur. Má geta þess til dæmis uin
agæti hússins, að í stormum, sem ekki eru sjaldgæfir hér, er illver-