Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 95
93
Ivlippt, ef annað dugar ekki. Ástandið er vafalaust lakara en skýrslan
ber með sér. Hér i kauptúninu er vitanlega til fullorðið fólk, sem allt-
af er lúsugt og smitar út frá sér, án þess að við sé hægt að ráða.
Upplýsingar og ráðleggingar hjálpa hér ekki. Tannskemmdir fundust
i 111, anaemia höfðu 5, hyptertrophia tonsillarum 6, vegetationes
ftdenoideae 4, snert af rachitis 3, scoliosis 3, adenitis colli 8, myopia
4, strabismus convergens 1, psoriasis 1.
Bildudals (60). Yfirleitt vel útlítandi og hraust. Engu meinuð
skólavist vegna veikinda. 2 börn Pirquet-þ, annað þeirra orðið það
síðan í fyrra, undir eftirliti, vel hraust. Scoliosis 1. Hypertrophia
tonsillarum höfðu 14 á lágu stigi, 11 á hærra stigi, microadenitis
colli 17, myopia 4, conjunctivitis 1.
Flateyrar (147). Heilsufar skólabarna gott og fjarvistir sökum
veikinda með minnsta móti. Útlit og umhirða barnanna var betri en
nokkru sinni. Við sama situr um óþrifin, lúsina og nitina, og kann
cg ekki á því tökin að útrýma þessu. Tannskemmdir eru miklar í
þorpunum, en venju minna um aðra kvilla. Ekkert barn þurfti að
hsetta námi vegna veikinda.
Bolungarvíkur (121). Meðal skólabarna bar talsvert á lús og nit.
ísafí. (405). Eins og áður ber mest á tannskemmdum, en óþrifa-
kvillar sjást nú varla. Allir unglingar, til fullra 17 ára, fá tannaðgerðir
ser að kostnaðarlausu, á meðan þeir sækja hér skóla, en slælega hefur
verið eftir því gengið, að unglingarnar notuðu sér þetta. Til þess að
úanna tannskemmdirnar, gerði tannlæknir í ár alls herjar tannrann-
sokn á nemendum Gagnfræðaskólans, og fór skráning tannskemmd-
anna fram eftir nýjum aðferðum, þar sem tekið er tillit til skemmdra,
viðgerðra og útdreginna fullorðinstanna. Við heildarútreikning kom í
líós, að „Caries(NMF)-index“ var 32%, á móti 18,4%, ef aðeins
or tekið tillit til skemmdra tanna. Mjög væri þýðingarmikið, að slíkar
rannsóknir væru teknar upp í öðrum kaupstöðum, þar sem tannlæknar
starfa við skóla hér á landi, til þess að sambærilegar tölur fengjust.
yarnaskóli ísafjarðar (337): Hryggskekkja 22, beinkramar-
einkenni á br jósti 20, naflatog 16, heyrnardeyfa 1, pes planus 8, ekzema
J> psoriasis í, vitiligo 1, alopecia areata 1, molluscum contagiosum
“> haemangioma 2, hypertrophia tonsillaris 22, adenitis colli 9,
Pyorrhoea alveolaris 1, hypertrophia glandulae thyreoideae 1, palato-
schisis 1, myopia 3, strabismus 1, kryptorchismus 1, ductus arteriosus
persistens 1, diabetes insipidus post trauma l.Barnaskólar Eyrar-
hr ep p s (68): Hryggskekkja 7, naflatog 4, pes planus 1, ekzema 1,
hypertrophia tonsillaris 3, situs inversus totalis 1.
Ögur (51). Lúsin má heita kveðin niður að mestu. Tannskemmdir
eru tiltölulega litlar í Reykjanesskólanum. Hinn mikli fjöldi barna
jaeð kok- og hálseitlauka í Súðavík kann að stafa af því, að hálsbólga
hafi verið að ganga, um þær mundir sem skoðun fór fram.
Árnes (51). Kláði kom upp í barnaskólanum á síðast liðnum vetri,
eins og áður greinir. Mest ber á tannskemmdum og lús. Aðrir kvillar
Vart teljandi, nema hvað 6 börn eru nærsýn og þar af 1 nær blint án
gleraugna, en hálf sjón með gleraugum. 3 börn höfðu hálseitlaþrota,
4 kokeitlaþrota, 1 lungnaþembu, 6 sjóndepru, 2 heyrnardauf, 1 spondy-