Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Síða 45
43
Dalvíkur. Fáein tilfelli, óskráð.
Vopnafí. Allt börn.
Seyðisjj. Ég pensla kaunin með 10% lapis. Batnar kvillinn þá að
jafnaði fljótt.
Nes. Sá aðeins 1 tilfelli.
Djúpavogs. Verður alltaf við og við vart, en batnar mjög fljótt, ef
skorpurnar eru losaðar af og pensilín-súlfasmjrrsl eða duft er borið
á; þarf oft ekki nema einu sinni.
23. Heilasótt (meningitis cerebrospinalis epidemica).
Töflur II, III og IV, 23.
Sjúklingafjöldi 1940—1949:
1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947 1948 1949
Sjúkl.......... 14 46 19 5 13 13 9 3 3 3
Éánir ......... 1 2 7 „ 1 „ „ „ 1 1
1 tilfelli í hverju þessara héraða: Rvík, ísafj. og Siglufj., ef rétt er
lesið úr skýrslum lækna, en of mikið ber á því, að þeir greini illa
sundur (í skýrslum sínum, hvernig sem er í praxis) meningitis cere-
brospinalis epidemica og encephalitis epidemica, og vilji helzt gera
úr einn sjúkdóm.
Læknar láta þessa getið:
ísafj. Aðeins 1 tilfelli, sem batnaði fljótt við súlfalyf.
24. Hvotsótt (myositis epidemica)1)
Töflur II, III og IV, 24.
Sjúklingafjöldi 1940—1949:
1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947 1948 1949
Sjúkl......... 21 15 76 20 43 318 230 23 38 12
Lítið áberandi á árinu og cr aðeins getið í 4 héruðum (Rvilc, Sauð-
úrkróks, Djúpavogs og Selfoss).
Læknar láta þessa getið:
Sauðárkróks. Alls skráð 5 tilfelli, 3 í marz og 2 í nóvember. Þar sem
fkki er um faraldur að ræða, er erfitt að vera viss um sjúkdómsgrein-
mguna, en mér virtust þó tilfellin greinileg.
1) Fyrir tilmæli Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinuar hefur verið lagt fyrir íslenzka
lækna að skrá undir heitinu myositis epidemica ekki einungis sting-
s°tt þá, sem bundin er við brjóstbolinn og hefur þess vegna verið kölluð pleuritis
epidemica, heldur einnig samsvarandi faraldursstingi, hvar í vöðvakerfi sem er.
'lafnframt hefur þótt eðlilegt að breyta íslenzka heitinu og nefna sótt þessa eftir-
leiðis hvotsótt (Sveinn Pálsson: vöðvahvot; hváta: stinga). Eftir sem áður
getur hvotsótt, sem einkennist af síðusting og minnir á fleiðrubólgu (pleuritis),
beitið stingsótt. Öll stingsótt er þá hvotsótt, en ekki öll hvotsótt stingsótt. Hafa
Verður i huga, að sjúklingatölurnar hér að ofan svara ekki enn til hins nýja heitis,
nema e. t. v. allra síðustu árin (sjá t. d. um myositisfaraldur í Húsavíkurhéraði
1945, sbr. Heilbrigðisskýrslur það ár, bls. 45—46), en reyndar er ekki gerandi ráð
fyrir neinu samræmi í því, hvað læknar kunna að hafa talið til stingsóttar undan-
farið.