Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Síða 35
33
lega þung og mikið af kveflungnabólgu samfara henni, einkum úti í
sveitinni. Mest var um veikindatilfelli í apríl, en síðara hluta mán-
aðarins rénaði veikin tiltölulega mjög snöggt, og bar litið á henni í
mai- í lungnabólgutilfellunum reyndust súlfa- og pensilínlvf yfirleitt
vel.
Grenivíkur. Gekk hér í marz og apríl, lagðist allþungt á suma, og
voru þeir lengi að ná sér. Tók víða alla á heimilum.
Kópaskers. 2 sjúklingar skráðir í apríl. Voru það námsmenn, sem
komu með slcipi frá Reykjavík, báðir veikir, en smituðu ekki frá sér.
Seyðisfí. í júní talinn fram 1 sjúklingur. Sennilega aðeins um kvef-
tilfelli að ræða.
Nes. Nokkur tilfelli skráð í apríl og maí. Mjög vafasamt, hvort ekki
var um vanalegt kvef að ræða.
Búða. Barst í héraðið í fcbrúarmánuði og gekk fram í júnímánuð.
Sóttin var yfirleitt væg, en tók fjökla fóllts. Nokkur kveflungnabólgu-
filfelli í kjölfar hennar.
Djúpavogs. Á mánaðarskrám í júlí—ágúst eru nokkur tilfelli skráð
Sem inflúenza, en þau tilfelli munu vera vafasöm, faraldurinn varla
n°gu litbreiddur til þess, og samfara þessu gekk kvef almennt. Að vísu
'f°i’U mörg tilfellin grunsamleg, hár hiti, beinverkir, hósti, stundum
umðnasir og einkenni frá lungum eins og við inflúenzu.
Breiðabólsstaðar. Vægur faraldur barst hingað í apríl með einum
manni, stóð fram í maímánuð, en lá svo niðri í 3 vikur, þar til hann
barst aftur hingað í júní, þegar samgöngur við héraðið opnuðust.
' eiktust þá sumir aftur, sem höfðu veikzt í fyrra skiptið, svo að
onæniið virðist standa mjög stutt. 2 konur á tíræðisaldri munu hafa
íatizt af völdum inflúenzunnar (hvorug þó talin beinlínis dáin úr
mflúenzu).
yikur. Kom undir Eyjafjöll í marzbyrjun og barst til Víkur í lok
manaðarins; tók þar allan fjöldann; allþung. Mest í apríl, fór að réna
Ur því.
. Vestmannaeyja. Barst hingað frá Reykjavík i marzmánuði og breidd-
jst óðfluga út. Lagðist þungt á margt roskið fólk og börn, sem fengu
jmgnabólgu upp úr veikinni og eyrnabólgu og voru lengi að ná sér.
eikin hvarf að kalla í einu kasti, eins og hún kom. Geri ráð fyrir, að
lneira en helmingur héraðsbúa hafi fengið veikina, því að margir leit-
uou ekki læknis, lágu heima 1—2 daga eða voru lasnir á fótum.
Róð
. rar féllu niður á einstaka bátum vegna veikinda skipverja í 2—3
skipti, og voru það minni spjöll en gera hefði mátt ráð fyrir. Meðan á
j úenzufaraldrinum stóð, höfðu læknar engan frið, hvorki nótt né
í aj?‘ Verst, að ekki var nóg rúm fyrir lungnabólgusjúklinga, sem þurft
,. ou fleiri að komast á sóttvarnarhús eða sjúkrahús til að fá pensi-
ln’ Sem reyndist ágætlega í þungum tilfellum.
Storólfshvols. Barst hingað í byrjun marzmánaðar og var viðloðandi
, .. tram í ágúst. Allútbreidd, en yfirleitt væg. Þó fengu nokkrir, helzt
ln> iungnabólgu upp úr henni. Á sama tíma gekk hér einnig all-
^jm kvefsótt og takmörkin á milli hennar og kvefsins nokkuð á
1 vl’ Állmargir sýktust, miklu fleiri en skráðir eru, þar sem eingöngu
u skráðir þeir, sem læknir kom til eða hafði einhver afskipti af.
5