Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 132
130
fyrir hina skipuðu ljósmóður, er hún þurfti að fá leyfi, mun nú hætt
að sinna þeim störfum. Er starfið því orðið með mesta móti fyrir eina
ljósmóður. Þetta ár starfaði hér tannlæknir Ólafur Thorarensen, og
skyldi hann vera tannlæknir barnaskólans, samkvæmt samningi við
bæjarstjórn. Úr framkvæmd þessari varð þó lítið. Hann hvarf brott iir
héraðinu nú um áramót og er eigi kominn aftur, þegar þetta er ritað.
Búðardals. Páll Gíslason stud. med. var staðgengill minn um mán-
aðartíma, meðan ég var i sumarorlofi.
Patreksfl. Héraðslæknir fótbrotnaði í skólaskoðunarferð seint í
október. Illa járnaður hestur datt með hann á svelli. Læltnirinn var
því frá verkum, það sem eftir var ársins og fram á næsta ár. Lækn-
arnir Lárus Jónsson og Björgúlfur Ólafsson gegndu fyrir hann þenna
tíma. Stud. med. Páll Gíslason gegndi í sumarorlofi læknis. Ljós-
móðir í sveitahéraði sagði af sér, og engin kom í hennar stað, svo að
nú eru 2 umdæmi ljósmóðurlaus í héraðinu.
Flateyrar. Heilbrigðisstarfslið óbreytt með öllu, frá því sem var síð-
ast liðið ár. Ingjaldssandsljósmóðurumdæmi ljósmóðurlaust og aðrar
ljósmæður í héraði að verða óstarfhæfar vegna áhaldaskorts; í 3 ár
hefur verið reynt að fá úr þessu bætt án árangurs.
Isafl. Heilbrigðisstarfsmenn hinir sömu og áður, hvað lækna snertir
og heilbrigðisfulltrúa, svo og Ijósmæður.
Ögur. Læknir var búsettur í héraðinu, í Súðavik, 9 mánuði ársins.
Annan tíma var því gegnt af héraðslækninum á ísafirði.
Árnes. Ein ljósmóðir gegnir störfum, en tvær aðrar dveljast nú hér.
Hvammstanga. Ég dvaldist enn erlendis frá áramótum til aprílloka,
síðan veður- og ferðatepptur í Reykjavík til 20. maí. Lárus Jónsson
læknir annaðist embættið á meðan. Ingibjörg Jónasdótir, ljósmóðir á
Hvammstanga, fékk lausn frá störfum, eftir meira en 40 ára ágæta
þjónustu. Ný ung ljósmóðir tók við 6. nóvember, og gegnir hún einnig
Staðarhreppi.
Blönduós. Sömu og áður, nema hvað nýútskrifuð ljósmóðir tók við
störfum 1. nóvember, og gegnir hún framhreppum sýslunnar, en situr
á Blönduósi og gegnir aðstoðarstörfum á sjúkrahúsinu, þegar hún ma
því við koma. Þá urðu og hjúkrunarkvennaskipti á sjúkrahúsinu. I
fjarveru minni um vetrartíma gegndi Lárus Jónsson störfum fyrir
mig, en mér til aðstoðar um sumarið var Gunnlaugur Snædal stud.
med. og einnig um tíma Jón Hannesson stud. med. Önnuðust þeir i
félagi læknisstörf mín um haustið um 3 vikna tíma, meðan ég fór a
norrænt embættislæknamót, sem haldið var í Hindsgavl á Fjóni og
mætti sem gestur á fundi Heilsuverndarfélagsins danska, sem haldið
var í Árósum.
Sauðárkróks. Norskur tannlæknir, Ole Bieltvedt, settist að á Sauðar-
króki á árinu. Fékk hann leyfi heilbrigðisstjórnarinnar til þess að
setja sig hér niður, en hafði áður í eitt ár unnið hjá tannlækm 1
Reykjavík. Var það mikið happ að fá tannlækni til að setjast hér að,
þar sem enginn tannlæknir hafði komið hér í mörg ár og margir
höfðu enga möguleika til að láta gera við tennur sínar. Er tannlækn-
irinn ráðinn til að gera við tennur skólabarna og fær fyrir það fasta
greiðslu úr bæjarsjóði. Aðrir heilbrigðisstarfsmenn hinir sömu og áður.