Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 30
28
Læknar láta þessa getið:
Hólmavíkur. Aldrei skráð né getið af ljósmæðrum. 2 konur, sem
fengu nokkra hitahækkun á 8. og 4. degi, fengu strax súlfalyf, og varð
ekkert frekar úr.
Hvammstanga. 2 konur fengu hita eftir fæðingu. Hin fyrri, 19 ára
frumbyrja, eftir eðlilega fæðingu, en lítið eitt varð eftir af belgjum.
1 síðara skiptið 32 ára frumbyrja; var um að ræða mjög seina og erf-
iða fæðingu, sem Ijúka varð með tangartaki, eftir að léttasótt hafði
staðið í næstum 3 sólarhringa. Konan hafði þá fengið um 39° hita;
barn hennar var líflítið og dó eftir 7 tíma. Báðar konurnar fengu
pensilín og súlfa, og batnaði þeim fljótt og vel. Þær fæddu á sjúkra-
húsinu.
Akuregrar. Um barnsfararsótt er ekki getið. Vel má þó vera, að
eitthvað af konum hafi fengið smávegis hita, en það hefur a. m. k.
ekki verið svo mikið, að læknar gætu um það í mánaðarskýrslum
sínum.
Brciðabólsstaðar. 1 kona fékk lítils háttar hitahækkun eftir erfiða
fæðingu samfara léttri toxaemia. Var þá ekki beðið boðanna, að hitinn
hækkaði meira, heldur gefið pensilín strax, og hvarf hitinn þá fljót-
lega.
Vestmannaegja. Veikinnar ekki getið á mánaðarskrám. Konum ekki
hlekkzt á samkvæmt gögnum ljósmæðra, svo að grunsamlegt þyki.
Keflavíkur. Kona fékk alvarlega barnsfararsótt með mikilli æða-
bólgu og' lá milli heims og helju langan tíma. Batnaði af pensilíni og
súlfa um síðir. Önnur kona fékk brjóstamein, sem skera varð í, og
hin þriðja bólgu í leg og legbönd. Báðum batnaði.
6. Gigtsótt (febris rheumatica).
Töflur II, III og IV, 6.
S júklingafjöldi 1940—1949:
1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947 1948 1949
Sjúkl 75 85 117 95 83 44 42 40 28 26
Dánir 1 „ „ 1 „ 3 2 1 1 99
Virðist vera rénandi i landinu, e. t. v. fyrir það, að fæst af því, sem
skráð hefur verið gigtsótt, hefur verið raunveruleg gigtsótt, heldur
berklakyns.
Læknar láta þessa getið:
Hólmavíkur. 18 ára piltur, sem 4 árum áður hafði legið lengi í gigt-
sótt, fékk afturkast, en hatnaði vel eftir langa legu.
Nes. 2 tilfelli, bæði frekar væg.
7. Taugaveiki (febris typhoidea).
Töflur II, III og IV, 7.
Sjúklingajjöldi 1940—1949:
1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946
3 4 5 „ 4 1 1
1947
2
1948
1949
99
Sjúkl.
99