Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Page 36
34
Ei/rarbakka. Talin hafa komið hingað seint í október og gengið hér
til áramóta. Bar mikið á henni í börnum, og fylgdi svæsin barkabólga
í flestum tilfellunum, einnig nokkur kveflungnabólga og taksótt.
Keflavíkur. Geisaði um héraðið um vorið, einkum í apríl—maí, og
kvað svo rammt að sums staðar, að bátar gátu ekki róið vegna veik-
inda áhafnar. Kom inflúenzan fyrst upp i mönnum, sem unnu á Kefla-
víkurflugvelli, en breiddist svo ört út um nágrennið, Njarðvikur og
Keflavík. Um líkt leyti geisaði inflúenza í nágrannalöndunum, og
var hinum tíðu flugvélakomum á Keflavíkurflugvöll um kennt, þó
að ekki væri hægt að rekja ferilinn. Ekki varð inflúenzan mannskæð
hér. Enginn dó, svo að mér væri kunnugt, en margir urðu hart úti og
voru lengi að ná sér eftir veikindin.
10. Mislingar (morbilli).
Töflur II, III og IV, 10.
Sjúklingafjöldi 1940—1949:
1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947 1948 1949
Sjúkl........ 14 „ 1 6616 540 3 23 4396 377 2
Dánir ....... „ „ „18 „ „ „ 5 1 »>
2 tilfelli skráð í Keflavíkurhéraði, en ekki gerð nánari grein fyrir.
11. Hettusótt (parotitis epidemica).
Töflur II, III og IV, 11.
Sjúklingafjöldi 1940—1949:
1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947 1948 1949
Sjúkl........ 1 197 5034 601 13 „ 4 19 397 1411
Díin.ir ..... 9) 1 fj ff tf tt tf tt
Landsfaraldur að hettusótt, sem hófst á Vestfjörðum á öndverðu
fyrra ári og var um áramót í 12 héruðum í öllum landsfjórðungum,
hélt áfram göngu sinni á þessu ári og var enn í hámarki í árslok.
Læknar láta þessa getið:
Hafnarfj. Fyrra hluta ársins gekk allmikill faraldur af hettusótt,
var útdauð í ágúst. Fremur væg. ,
Akranes. Gekk yfir héraðið frá febrúar til nóvemberloka, en mes
júlí—september. Margir fullorðnir fengu hana; var hún þyngri í þellU
og stóð lengur. Fáein tilfelli af orchitis voru meðal þeirra.
Búðardals. Viðloðandi í héraðinu allt árið, og virðist illt að kvc a
þann draug niður. Þó að veiki þessi liggi niðri tímunum saman, sting111
hún upp kollinum aftur á hinum ólíklegustu stöðum. Er yfirleitt van-
Þó hefur nokkuð borið á orchilis.
Patreksfj. Barst í héraðið í janúarmánuði, fékk mikla útbreiðslu, í”11
var væg. Fylgikvillar voru, mér vitanlega, engir.
Flateyrar. Varð vart í Súgandafirði í janúar, en breiddist ekki út.
Hólmavikur. Kom upp á 2 samliggjandi bæjum í desember, og sýk -