Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 286
284
Tillaga réttarmáladeildar um
Ályktun læknaráðs:
Ad 1) Nei.
Ad 2) Eðlilegt verður að teljast, að sjúklingur fari eftir því líkum
ráðleggingum læknis síns.
Ad 3) Læknaráð fellst á mat ... læknis, en telur ekki ástæðu til
að gera ráð fyrir neinni varanlegri örorku vegna slyssins.
Greinargerð og ályktunartillaga réttarmáladeildar, dags. 3. júlí
1951, staðfest af forseta 11. s. m. sem álitsgerð og úrskurður lækna-
ráðs.
Málsúrslit: Með dómi bæjarþings Reykjavíkur, kveðnum upp 6. nóvember 1951,
var stefndur, S. E-son, dæmdur til að greiða stefnanda, S. E-syni, kr. 8 120.41
með 6% ársvöxtum frá 21. október 1948 til greiðsludags og kr. 1 150.00 i máls-
kostnað.
8/1951.
Dómsmálaráðuneytið hefur með bréfi, dags. 4. júlí 1951, óskað um-
sagnar læknaráðs varðandi „voveiflegan dauða“ E. G. Þ-son.
Málsatvik eru þessi:
Hinn 26. desember 1950 var . .. starfandi læknir í Reykjavík,
kvaddur símleiðis um kl. 12 á miðnætti til frú E. G. Þ-son, f. 6. nóv-
einber 1908, konu H. Þ-sonar framkvæmdarstjóra, ... í Reykjavík.
Hringdi framkvæmdarstjórinn sjálfur til læknisins og tjáði honuni,
að kona sín hefði, rétt áður en hann hringdi, tekið mikið af svefn-
meðulum. Telur læknirinn sig hafa verið kominn til sjúklingsins
innan tíu mínútna og skýrir svo frá:
„Þegar ég kom á staðinn, lá kona H. meðvitundarlaus á sóffa inni
í dagstofu þeirra lijónanna. Ég athugaði þá þegar púls konunnar, en
þar sem ég þá gat hvorki fundið neitt slag í púlsinum eða orðið þess
var, að konan drægi neitt andann, ákvað ég að flytja konuna strax
á spítala og aðstoðaði H. mig við að bera hana út í bifreið, sem
ég var með, og fluttum við hana strax á Landspítalann. Þar voru
síðan gerðar lífgunartilraunir á konunni fram til kl. 04,00 um nótt-
ina, en þær reyndust með öllu árangurslausar og býst ég við, að
konan hafi þegar verið dáin, er ég kom á heimili þeirra hjónanna.“
Ennfremur vottar læknirinn, að morguninn eftir lát konunnar
hafi hann tekið i sínar vörzlur öskjur undan meðulum, sem voru í
skúffu í eldhúsborði, þar sem konan geymdi meðul sín. Telur hann,
að þar á meðal hafi verið þrjár öskjur með svefnmeðulum. Nokkr-
um dögum síðar athugaði hann ásamt borgarlækni, ... (í Reykja-
vík), öskjur þessar, og tók borgarlæknir í sínar vörzlur þær þeirra,
er þeir töldu hafa þýðingu í málinu, en hinum tortímdu þeir.1) Meðal
1) Þessi athugun og ráðstöfun lyfjanna er þó væntanlega samkvæmt fyrirmæl-
um og á ábyrgð rannsóknardómarans.