Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Síða 200
198
í héraðinu tilfinnanlegur. Þó hefur lítið eitt bætt úr þessu smáfrysti-
hús, er byggt var í Króksfjarðarnesi á árinu.
Bíldudals. Fatnaður virðist mér yfirleitt í engu frábrugðinn því, sem
víðast tíðkast hér á landi, en mikill skortur hefur verið á öllum
fatnaði í verzlunum hér allt þetta ár. Fólk mun lifa vel í mat hér.
Frystihúsið leigir almenningi skápa til geymslu á kjöti og öðrum mat-
vælum; einnig hefur það flestar tegundir af nýjum fiski til sölu allt
árið. Mikil garðrækt. Bakarí á Bíldudal.
Flateyrar. Fatnaður og matargerð er óbreytt frá því, sem verið hef-
ur, nema hvað hvort tveggja er fábreyttara en fyrr vegna skorts á
innfluttri vöru. Á fyrra ári fengust rándýrar flíkur úr „verksmiðj-
um“ í Reykjavík, en lítið af fataefnum, en nú fæst hvorugt. Sauma-
skapur er því að mestu lagður niður og árleg saumanámskeið kven-
félaganna óframkvæmanleg.
Hvammstanga. Fatnaður og matargerð líkt og svipað og verið hefur,
nema meira en nú um nýmeti, eða öllu heldur frystan mat, síðan hið
vandaða frystihús kaupfélagsins á Hvammstanga var fullgert og tók
til starfa.
Blönduós. Fatnaður hefur tekið allmiklum breytingum til bóta,
einkum fatnaður karla, sem áður gengu oft frekar durgslega til fara.
Fatnaður kvenna er nú einnig smekklegri, og ber lítið á pokabuxun-
um, sem einkum voru andstyggilegar á gildvöxnu kvenfólki. Stórum
bætt afkoma, frá þvi sem var á kreppuárunum eftir 1930, á auðvitað
mikinn þátt í þessari breytingu, eins og húsabótunum. Matargerð
mun vera svipuð og undanfarið. Neyzla hveitibrauðs mun hafa minnk-
að, og er nú algengara að bera smurt brauð fyrir gesti, sem áður
þekktist varla, en færri hafðar kökutegundirnar. Ég hef ekki orðið
þess var, að mjólkurneyzla hafi minnkað að mun við stofnun Mjólk-
ursamlagsins. Það kjöt, sem mest er lagt af til heimilis ár hvert, er
víðast hvar í sveitum hrossakjöt, enda hægt um heimatökin, þvi að
Húnvetningar eiga 20% af öllum hrossastofni landsmanna.
Ólafsfj. Fatnaður og matargerð svipað og áður. Saumanámskeið
haldið á vegum kvenfélagsins. Erfitt með útvegun á ytrifataefni.
Grenivikur. Fatnaður hefur ekki tekið neinum verulegum breyting-
um, og' sama er að segja um matargerð.
Vopnafj. Mikil vöntun á efni öllu til fatnaðar. Úthlutað lítils háttar
af álnavöru, en hvergi nærri nægilegu til viðhalds fatnaði og sængur-
fatnaði. Kvarta allir sárlega um vöntun á fatnaði, álnavöru, nærfatn-
aði og sokkum og ekki að ástæðulausu. Fæði mun almennt mjög
svipað og undanfarin síðustu ár. Mjóllc er víðast hvar næg. Börnum
er gefið lýsi. Uppskera garðávaxta varð lítil, vegna þess hve xitsæðx
komst seint niður. Kartöflur voru fluttar inn í héraðið, en varla svo,
að nægði. Sælgætiskaup eru mikil og bæði til skaða og skammar.
Bakkagerðis. Hvort tveggja mun vera minna háð tizkunni en hér1)
gerist og því sennilega heilsusamlegra. Mjólkurneyzla er mikil, þvx
að mjólk er nægileg á öllum heimilum, bæði í þorpinu og eins í syeit-
inni. Nýmeti geta nú öll heimili í hreppnuin veitt sér allt árið, síðan
1) Héraðslæknir á Scj’ðisfirði gerir skýrsluna.