Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 120
118
saúmað, greri pr. pr. Annað barn festi fiskiöngul í andlit sér. Var
komið með sjúkling til móts við Egilsstaðalækni, sem tók öngulinn.
Karlmaður einn fékk skotsár í fingur.
Seyðisjj. Eina slysið, sem orð er á gerandi, var, að 18 ára náms-
maður, sem vann við brúarsmíð á Héraði, varð fyrir því, að stór
fallhamar féll á hönd hans og marði hana sundur upp á mitt handar-
bak. Pilturinn hélt aðeins litla fingri og nokkru af græðifingri; hina
3 varð að taka af uppi við miðhandarbein. Sárið greri vel, og sjúk-
lingurinn er nú (marz 1950) í Danmörku til að fá gerfifingur. 2 er-
lendir sjómenn voru í sjúkrahúsinu með beinbrot, annar með fract.
femoris, hinn fract. & lux. mandibulae. 11. ágúst voru fluttir hingað
7 brunasjúklingar frá Skuggahlíð í Norðfirði, er bærinn þar brann.
3 af sjúklingunum voru dauðvona og lifðu aðeins nokkrar klukku-
stundir. G,ert var að sárum hinna og 2 siðan sendir loftleiðis í Lands-
spítalann, en hinir 2 græddir í sjúlcrahúsinu.
Nes. í Skuggahlíð í Norðfirði biðu 5 manns bana af afleiðingum
bruna. Tvennt af því, öldruð kona og 1 árs barn, dóu af afleiðingum
reyks; náðust óbrennd út um glugga. 2 drengir, synir bóndans, 10
og 12 ára, og systir bóndans, 56 ára, létust samdægurs af brunasáruin.
Þar að auk hlutu 6 manns meiri og minni brunasár, einkum á útlimi
og í andlit. Svo heppilega vildi til, að um sama leyti sem þessir at-
burðir gerðust, kom togarinn Goðanes af veiðum, og flutti ég 7 hina
verst útleiknu á togaranum til Seyðisfjarðar í sjúkrahúsið. Neskaup-
staður er sjúkrahúslaus og því engin aðstaða til að gera að sárum
fjölda fólks jafnilla útleikins. Vorum við Egill læknir mikinn hluta
dags að ganga frá brunasárum fólksins. Þrennt dó samdægurs á
spítalanum, 2 piltar um tvítugt, sem voru sliaðbrenndir, voru fluttir
flugleiðis daginn eftir á Landsspítalann og lágu þar lengi. Fólkið, sem
lifði þetta af, er nú komið til sæmilegrar heilsu og hefur tiltölulega
lítil örkuml. Tildrög eldsvoðans, eftir því sem ég kemst næst, eru þau,
að húsmóðir var að kveikja upp eld í eldavél og notaði til þess olm
með þeim afleiðingum, að sprenging varð i eldavélinni. Varð eldhúsiö
alelda strax. Eldurinn komst fljótlega í skúr, sein gengið er út um úr
húsinu. Þar var benzínljósamótor, og varð þar önnur sprenging, uffl
leið og fólkið, sem verst var útleikið, var að komst út. Loftþrýstingur
varð geysimikill, og féll þá aftur útidyrahurð, sem opnaðist inn. Hitt
fólkið, sem út var komið brenndist aðallega við að bjarga út úr eld-
hafinu drengjunum tveimur og konunni, sem létust samdægurs. Onn-
ur slys: Fract. claviculae 2, costarum 6, radii 1, tibiae 1, fibulae L
cruris 2, metatarsi 2, digiti complicata 2. Lux. humeri 4, sublux. radu
1. Distorsiones 8. Connnotio cerebri 3. Auk þess mikið um smærrl
slys, svo sem skurði, stungur og aðskotahluti, einkum í auga.
Búða. Engin meira háttar slys á árinu, en óvenjulega mörg smáslys,
krókstungur, mör og meira háttar skurðsár. Þó má geta tvegg,]a
barna, systkina, 14 ára stúlku og 12 ára drengs. Voru í hænsnakofa,
lokuðu að sér kofanum, höfðu eld á hlóðum; þóttust vera í útilegu.
Eldur komst í kjól og buxur stúlkunnar. Var þá hlaupið til dyra, en
ekki hægt að opna þær. Af tilviljun einni heyrðist óp þeirra, og var
þeim bjargað. Var þá telpan mikið brunnin á leggjum og lærurn, en