Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 234
232
2. Um ónæmisaðgerðir, einkum kúabólusetningu.
11. desember 1950.
Hér með sendast yður, herra héraðslæknir, sérprentuð hin nýju
lög nr. 36 27. apríl 1950, um ónæmisaðgerðir, er ganga í gildi nú um
áramótin. Jafnframt sendast yður nokkrar birgðir tilheyrandi eyðu-
blaða, þ. e. undir 1) Ónæmiskírteini, 2) Skrá um kúabólusetta, sem
krafizt er greiðslu fyrir beint úr ríkissjóði, 3) Skýrslu um ónæmis-
aðgerðir. Enn fremur fylgir stimpill ásamt stimpilpúða til ástimpl-
unar á ónæmiskírteini.
Þess er vænzt, að yður verði nægilega Ijós öll tilhögun framkvæmda
samkvæmt þessari nýju löggjöf, er þér hafið kynnt yður lögin og
leiðbeiningarnar á eyðublöðunum, en til þess þurfið þér að lesa hvað
eina með góðri athygli. Siðan skuluð þér ekki hlífast við að leita
hingað nánari skýringa, ef yður kynni að virðast eitthvað tvírætt eða
torskilið.
Til frekari skýringar því, hvernig
skrá skal og stimpla ónæmisaðgerð
á ónæmiskírteini, er á álímdum
miða skráð sem dæmi kúabólusetn-
ing með jákvæðum árangri, hugsuð
framkvæmd í héraði yðar.
Þér gætið þess, að hið nýja eyðu-
blað undir Skýrslu um ónæmisað-
gerðir (tilheyrandi ársskýrslu) not-
ið þér fyrst, er þér gerið ársskýrslu
fyrir næstkomandi ár (1951). Hin
eldri bólusetningareyðublöð verðið
þér því að varðveita, unz þér hafið
gengið frá öllum plöggum tilheyrandi bólusetningum á liðnum tíma
og yfirstandandi ári (1950), en eftir það er öruggast fyrir yður að
tortíma leifunum, til þess að ekki valdi ruglingi.
8. des. 1952.
Af gefnu tilefni skal athj’gli héraðslækna vakin á eftirfarandi
atriðum varðandi greiðslu beint úr ríkissjóði fyrir kúabólusetningu
samkvæmt löguin nr. 36 27. april 1950, um ónæmisaðgerðir.
1. Þar sem heilsuverndarstöðvar eru, en þeim ber að vera í öll-
um kaupstöðum (sbr. lög nr. 64 1. des. 1944, um heilsuverndarstöðv-
ar), annast þær kúabólusetningu í umdæmi sínu, bæði frum- og
endurbólusetningu, og kemur þá yfirleitt ekki til greina greiðsla beint
úr ríkissjóði fyrir kúabólusetningu.
2. Annars staðar er ekki heldur almennt að vænta greiðslu beint
úr ríkissjóði fyrir endurbólusetningu, sem héraðslæknum ber að fram-
kvæma jafnframt skólaskoðun án sérstakrar aukaþóknunar.
3. Aðalregla á að vera sú, að héraðslæknar, þar sem ekki eru
heilsuverndarstöðvar, annist kúabólasetningu sjálfir, en heimilt er
þeim að fela ljósinæðrum eða öðru hæfu fólki framkvæmd kúabólu-
setningar í sínu umboði. Þó ganga héraðslæknar ævinlega sjálfir