Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 263
261
Af greindum ástæðum virðist mér nauðsynlegt að fá í hendur ná-
kvæm svör háttvirts læknaráðs við framan greindum spurningum
mínum, áður en málið verður flutt í hæstarétti."
Málið er að þessu sinni lagt fgrir læknaráð á þá leið,
að ákæruvaldið óskar svars við framan greindum spurningum sækj-
anda.
Tillaga réttarmáladeildar um
Ályktun læknaráðs:
Læknaráð hefur þegar svarað öllum spurningum um læknisfræði-
leg atriði varðandi mál þetta, sem fyrir ráðið hafa verið lagðar.
Ef rekja ætti „öll“ þau „réttarlæknisfræðilegu atriði“, sem annars
vegar „benda til þess, að fósturlát G. Ó-dóttur hafi orðið af manna-
völdum“ (abortus provocatus), og hins vegar „öll“ þau „réttarlæknis-
fræðilegu atriði, sem benda til, að fósturlátið hafi verið ósjálfrátt“
(abortus spontaneus), svo og segja til um, hver „veigameiri“ séu, fæl-
ist í því mat á gildi hins mótsagnakennda vitnisburðar, sem fram
hefur komið við rannsókn málsins.
Lítur læknaráð svo á, að slíkt mat sé ekki hlutverk sitt, heldur
dómara. Víkur ráðið sér því undan að svara ofangreindum spurning-
um sækjanda.
Að öðru leyti vísar læknaráð til fyrri úrskurða sinna, bæði varð-
andi sérfræðileg atriði og afstöðu ráðsins til spurninga málfærslulegs
cðlis.
Greinargerð og ályktunartillaga réttarmáladeildar, dags. 24. apríl,
staðfest af forseta 30. s. m. sem álitsgerð og úrskurður læknaráðs.
Málsúrslit: Með dómi hæstaréttar 25. júní 1951 var saltborningur, J. S-son, dæmd-
ur i 3000 kr. sekt fyrir brot á 6. gr. 1. nr. 47 1932, um lækningaleyfi o. fl., en
sýknaður að öðru leyti.
5/1951.
Borgardómarinn í Reykjavík hefur með bréfi, dags. 29. marz 1951,
samkvæmt úrskurði kveðnum upp í bæjarþingi Reykjavíkur s. d.,
oskað álits læknaráðs í málinu: G. O-son gegn M-nesi h.f.
Málsatvik eru þessi:
Hinn 13. marz 1946, kl. 4% síðdegis, var G. B. O-son frá ... í ...
hreppi, f. 24. febr. 1898, á leið hjólríðandi inn veginn í Gerðahreppi
°g ætlaði að Gufuskálum í Leiru. Varð hann þá fyrir slysi með þeim
hætti, að vörubifreið í eigu stefnds, sem var á leið frá Sandgerði til
Keflavíkur, ók á hann með þeim afleiðingum, að hann kastaðist af
hjólinu og meiddist. Var hann fluttur heim að ... og sóttur til hans
læknir ..., starfandi læknir í Keflavik, er gerði að meiðslum hans.
Ekki liggur þó fyrir frá . .. (þeim lækni) neitt vottorð í málinu, sem