Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 108
106
Reykhóla. Viðstaddur 5 fæðingar, sem allar gengu eðlilega, en töng
var beitt í eitt skipti hjá primipara með lélega sótt, en stórt barn.
Bæði barni og móður leið vel eftir aðgerðina. Veit um 1 fósturlát á
árinu. 1 kona lá lengi meðgöngutímans sakir hyperemesis gravid-
arurn.
Bíldudals. 10 sinnum vitjað til fæðandi kvenna, yfirleitt til að deyfa
að ósk þeirra. 3 höfðu það litla sótt, að hert var á hríðum. Éin
sitjandafæðing, hríðar mjög linar og harnið skakkt, en fæddist greið-
lega, eftir að það hafði verið rétt. 3 minna háttar spangarsprungur
saumaðar. 3 konum leystist höfn, sem mér er kunnugt um, en engin
þeirra þurfti læknisaðgerðar við.
Flateyrar. Var viðstaddur 14 fæðingar, þar af 8 á sjúkraskýlinu, og
fer það mjög í vöxt, að konur óski að ala börn sín þar, til þæginda
fyrir alla aðila. Fæðingarnar gengu allar áfallalaust, nema ein, og
lifðu konurnar allar og börnin. Tangartak varð ég að gera á 36 ára
multipara á Stað í Súgandafirði; bar framhöfuð að, og stöðvaðist fæð-
ingin. Tókst þetta vel. Á 4. sólarhring fékk konan hita, sem stóð á
annan dag, og mun það hafa stafað frá stíflu í brjóstum. Fósturlát
varð ég ekki var við á þessu ári.
ísafj. 1 barn fæddist andvana vegna lues konunnar. 3 börn fæddust
fyrir tíina, og dóu þau öll; eru það hin verstu tíðindi, en ekki alltaf
gott við það að ráða. Mikið má þó gera með traustu hjúkrunarliði
og góðum útbúnaði, en, eins og um getur í skýrslu sjúkrahúslæknis,
voru erfiðleikar með að fá hjúkrunarfólk fyrra hluta ársins. Ljós-
mæður geta aðeins einu sinni um fósturlát á árinu, en þess utan var
8 sinnum skafið út leg á árinu, á sjúkrahúsinu, vegna fóstúrláta.
Keisaraskurður var gerður tvisvar á árinu; í annað skiptið var um
að ræða þrönga grind, en i hitt fyrirsæta fylgju. Öllum konum heils-
aðist vel.
Ögur. Fæðingar alltaf fáar í héraðinu, og má heita viðburður, ef
barn fæðist í Inn-Djúpinu. Alls komu nú 11 fæðingar á skrá 1 jós-
mæðra i héraðinu, og voru 8 þeirra í Súðavik. 1 kona var flutt úr
Súðavík vegna placenta praevia og gerður á henni keisaraskurður á
sjúkrahúsi ísafjarðar. Öllum konum og börnum heilsaðist vel.
Hestegrar. Engin fæðing á árinu.
Árnes. Börnum og konum heilsaðist vel. Allar hafa börn á brjósti.
Mín einu sinn leitað til 24 ára frumbyrju. Fæðing gekk seint, og hafði
konan mikla ógleði og uppköst. Allt virtist eðlilegt. Var Ijósmóðir búin
að gefa hríðaraukandi lyf. Gaf 1,5 cg af morfíni subcutant. Sofnaði
konan þá í 3—4 klukkustundir, og gekk fæðingin síðan fljótt og vel.
Klóróformsvæfing, meðan á kollhríðinni stóð. Eigi hef ég orðið þess
var, að barneignir væru takmarkaðar. Fósturlát engin mér vitandi.
Hólmavíkur. Læknir sóttur til 26 fæðandi kvenna af 39. Allt var
um gerð gengið hjá einni konunni, svo að læknir var viðstaddur 25
fæðingar, langoftast til að deyfa. Fæðingar gengu yfirleitt vel. 1 kona
féklc allsvæsna blæðingu fyrir fæðingu. Fósturhljóð heyrðust ekki,
er að var komið. Fæddi skömmu siðar eftir pitúitríngjöf andvana
sveinbarn. Fylgjan þegar laus, og með henni fylgdu ca. V2 lítri af
blóðlifrum. Konunni heilsaðist vel. Ein tvíburafæðing gekk greiðlega.