Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 101
99
aldrei taldir með sjúklingum sjúkrahússins. Ferðir höfum við farið
106 út um héraðið, auk 8 skólaskoðunarferða. Skiptast þær þannig á
mánuði: Janúar 12 ferðir, febrúar 8, marz 4, apríl 8, maí 4, júní 12,
júli 12, ágúst 11, september 9, október 9, nóvember 8 og desember 8.
Hofsós. Ferðalög alltaf mikil. Farnar voru 219 ferðir út fyrir tak-
mörk Hofsóskauptúns. í Fijótin voru farnar 57 ferðir, og er það
sennilega fleiri ferðir en nokkru sinni áður. Ég mun hafa ferðazt 10
þúsund km í öllum ferðunum, allt að heita má í bíl.
Ólafsfj. Hver sjúklingur aðeins eintalinn, þótt hann komi með
fleiri kvilla (væntanlega í sama sinni?) og þaðan af fleiri viðtöl eða
aðgerðir eigi sér stað.
Akureijrar. Aðsókn að læknum og sjúkrahúsum hefur verið mjög
mikil, eins og undanfarandi ár, og var um áramótin tekin upp sú ný-
breytni hjá sjúkrasamlagi Akureyrar, að meðlimir urðu að velja sér
fastan heimilislækni fyrir allt árið, sem ekki hafði áður verið. Við
þetta hefur orðið allmikil röskun á sjúklingatölu lækna og þá að sjálf-
sögðu í þá átt, að færri nýir sjúklingar hafa leitað til hvers læknis
á árinu en verið hefur undanfarin ár. Af ferðunum fór héraðslæknir
sjálfur 180 ferðir.
Kópaskers. Farnar voru á árinu 80 ferðir til sjúkravitjana, samtals
6245 km heiman og heim. Lengsta ferðin var um 200 km og 36
ferðir yfir 100 km. Má af þessu nokkuð marka langræðið í héraðinu.
Seyðisfi. Fæstir sjúklingar í maí, eða 80, en flestir í nóvember, 213.
Ðjúpavogs. % hluti læknisferða í Breiðdal.
Vestmannaeyja. Með meira móti. Aðsóknin i marz og apríl með mesta
móti vegna inflúenzufaraldurs.
Stói-ólfshvols. Segja má, að aðsókn að lækni fari árlega vaxandi. Nú
orðið leitar fólk læknis, hvað lítið sem því finnst vera að, enda fara
samgöngur batnandi með hverju ári, og er ólíkt auðveldara að ná til
læknis en áður var. Sjúklingatala ekki nákvæm, en hygg hana ná-
lægt 2000. Ferðir til sjúkravitjana um 400, eftir því sem ég kemst
næst; fór sjálfur 200 ferðir á rúmlega 5 mánuðum.
F. Augnlækningaferðir.
Samkvæmt lögum nr. 12 25. janúar 1934 ferðuðust 4 augnlæknar
um landið á vegum heilbrigðisstjórnarinnar: Kristján Sveinsson,
augnlæknir í Reykjavík, um Vestfirði, Helgi Skúlason, augnlæknir á
Akureyri, um Norðurland, Bergsveinn Ólafsson, augnlæknir í Reykja-
vík, um Austfirði, og Sveinn Pétursson, augnlæknir í Reykjavík, um
Suðurland.
Hér fara á eftir skýrslur þeirra um ferðirnar:
Kristján Sveinsson.
Ferðalagi hagað svipað og' undanfarin ár og víðast mikið að gera.
Skipting eftir stöðum og helztu sjúkdómum er sem hér segir: