Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 208
206
byggð) og gamalt og illa faxáð timburhús i Ólafsvík. Farnar 5 skóla-
skoðunarferðir í 4 hreppa (2 í Staðarsveit).
Búðardals. Skólaskoðun fór fram í öllum skólastöðum í byrjun
skólaársins. Segja verður, að skólastaðirnir séu viðunandi, því að
ekki virðist í annað hús að venda, enda þótt plássið sé víða bæði
lítið og lélegt.
Reijkhóla. Með svipuðu sniði og áður. Börn skoðuð í byrjun skóla-
ársins. Þó hefur sú breyting orðið í Reykhólahreppi, að farkennsla
er þar lögð niður og heimavistarskóli kominn að Reykhólum, þótt
í bráðabirgðahúsnæði sé, þ. e. húsi, byggðu við sundíaug staðarins
og því eingöngu ætluðu til nota fyrir starfsemi við sundkennslu í
framtiðinni. Er nú unnið að útvegun leyfa til byggingar heimavistar-
skóla að Reykhólum, og' á sá skóli að nægja fyrir alla hreppa hér-
aðsins. Myndi þá mjög auðveldast allt skólaeftirlit.
Patreksfj. Skólaskoðun fór fram í öllum hreppum héraðsins, nema
í hluta af Rauðasandshreppi, þar sem héraðslæknir slasaðist á leið
þangað.
Bíldudals. Gagngerðar endurbætur fóru fram á skólahúsinu á Bíldu-
dal og það allt málað; var því lokið, áður en kennsla hófst í haust.
Var ekki vanþörf á, svo nöturlegt sem það var orðið. Þó að gamalt
sé, stendur húsið vel enn þá, enda verið vandað í upphafi, en að
sjálfsögðu er það nú orðið allt of lítið fyrir 50 börn, aðeins 2 fremur
litlar kennslustofur. I fyrra mun hafa verið sótt um fjárfestingar-
leyfi fyrir byggingu nýs skólahúss hér á Bíldudal, en ekki fengizt.
Flateyrar. í Súgandafirði var vígður nýr barnaleikvöllur á síðast
liðnu sumri, sem mun vera einn fullkomnasti sinnar tegundar hér
á landi. Aðalsteinn Hallsson skólastjóri hratt þessu í framkvæmd
af miklum dugnaði. Skólaeftirliti háttað á sama veg og verið hefur.
Nokkuð hefur þokað áleiðis byggingu heimavistarbarnaskólans í Mos-
vallahreppi, en sækist seint. Annað óbreytt, frá þvi sem verið hefur,
en fjáröflun hafin til undirbúnings skólabyggingu á Flateyri og
Suðureyri.
ísafj. Skólaeftirlit með svipuðu sniði og áður og sérstök áherzla
lögð á meðferð vaxtargalla með sérstakri leikfimi og sundi.
Ögur. Kennt í 2 skólum. Börnin skoðuð tvisvar á skólatímanum.
Hvammstanga. Skólaskoðanir framkvæmdar, að venju, í byrjun
skólaársins. Skólastaðir allir viðunandi.
Blönduós. Skólastaðir fyrir farskólana eru nú yfirleitt orðnir all-
miklu betri en áður, því að jafnaði er skólunum komið þar fyrir, sem
reist hafa verið ný íbúðarhús á bæjum, en sérstök skólahús hafa ekki
verið byggð á þessu ári.
Sauðárkróks. Með svipuðu sniði og undanfarið. Barnaskólanum á
Sauðárkróki mátti nii heita lokið. Voru þar til húsa bæði barna-
skólabörn, gagnfræðaskólanemendur og iðnskólanemar. Barnaskóla-
byggingunni i Lýtingsstaðahreppi var það langt komið, að kennsla gat
hafizt. Þó er húsið hvergi nærri fullgert. Er það stórt og myndarlegt
hús, hitað upp með hveravatni. Annars eru skólastaðir hinir sömu
og undanfarið. Auk skólabarna voru skoðaðir nemendur gagnfræða-
skólans og iðnskólans og námsmeyjar kvennaskólans á Löngumýri.