Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 211
209
vel fullorðna slöttólfa liggja uppi á sér, 1 stað þess að láta þá vinna
fyrir sér, og er þar ekki atvinnuleysi einu saman um að kenna.
Sauðárkróks. Barnaverndarnefnd hefur reynt að takmarka útiveru
barna á kvöldin og eins reynt að takmarka aðsókn barna að skemmti-
samkomum. En því virðast lítil takmörlc sett, hvað foreldrar leyfa
börnum sínum í þessu tilliti.
Ólafsfí. Með sama losarabrag og’ undanfarið.
Akureijri. Kvenfélög bæjarins að byggja dagheimili, sem taka mun
til starfa á næsta ári.
Grenivíkur. Mun sæmilegt. Hef ekki orðið var við neina óknytti
barna. Annars virðist mér þau vera látin helzt til afskiptalítil, er þau
fara að geta bjargað sér, þó eð eðlileg't sé, þar sem mæður eru önn-
um kafnar við heimilisstörf og búsýslu. Af þeim ástæðum eru börnin
látin eiga sig, eins og hægt er.
Breiðabólsstaðar. Misjafnt eftir foreldrum. Óknyttir eru fátíðir.
Yfirleitt er fólk gott við börn sín, og skiptir það mestu máli, þó að
nokkuð kunni að skorta á aga og aðra tamningu.
Vestmannaeyja. Sums staðar mjög ábótavant. Talsvert ber á óknytt-
um barna og unglinga.
13. Meðferð þurfalinga.
Læknar láta þessa getið:
Árnes. Meðferð þurfalinga góð, enda fáir.
Blönduós. Mun hiklaust mega teljast góð.
Sauðárkróks. Góð.
Ólafsfj. Þeir fáir, en meðferð góð.
Grenivíkur. Nú er varla hægt að tala urn þurfalinga eins og áður,
síðan almannatryggingarnar tóku til starfa. Þeir, sem þeirra njóta
hér, hafa sæmilegt fyrir sig að leg'gja, því að allflestir þeirra lifa að
einhverju leyti á gömlurn merg og hafa eitthvert smádundur við að
vera, sem einnig hjálpar þeim.
Bakkagerðis. Þurfalingar engir.
Seyðisfi. Þurfalingar ekki aðrir en 2 fávitar og nokkur gamalmenni,
°g fer vel um það fólk.
Breiðabólsstaðar. Ágæt.
Vestmannaegja. Góð.
14. Ferðalög héraðslækna og læknisaðgerðir utan sjúkrahúsa.
Læknar láta þessa getið:
Ólafsvíkur. Flestar ferðir fór ég einn í bíl í björtu og svörtu, greið-
færi og ófærð (bíllinn er WiIIys-jeep, mod. 1946, yfirbyggður, og er
það mér, fótfúnum manninum, geysihaglegur bíll).
Búðardals. Ferðalög verða nú sífellt auðveldari, því að vegirnir
katna ár frá ári, og' brýr eru komnar á margar verstu árnar. Er
ni* t. d. fært orðið umhverfis Strandir allan ársins hring, hindri
ckki snjór eða ár í vexti. Annars er snjórinn fljótur að gera alla vegi
ofæra hér, kyngi honum niður að nokkru ráði. Sérstaklega er Svína-
dalur fljótur að lokast og Brattabrekka sömuleiðis. Getur þá oft verið
27