Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 131
129
eyrarhéraði frá 1. nóvember að telja. — Héraðslæknir á ísafirði settur
2. nóvember til að gegna ásamt sínu héraði Ögur- og Hesteyrarhér-
uðum frá 1. s. m. að telja. — Björgúlfur Ólafsson, læknir í Reykjavík,
ráðinn aðstoðarlæknir héraðslæknis í Patreksfjarðarhéraði frá 1.
nóvember að telja; ráðningin staðfest 2. nóvember. — Þóroddur Jón-
asson, cand. med. & chir., ráðinn aðstoðarlæknir héraðslæknis í
Egilsstaðahéraði frá 1. desember að telja; ráðningin staðfest 16.
nóvember (afsalaði hér ráðningunni og tók aldrei við starfinu). —
Valtýr Valtýsson, héraðslæknir í Kleppjárnsreykjahéraði, andaðist
hinn 18. nóvember. — Héraðslæknir í Borgarneshéx-aði settur 25.
nóvember til þess að gegna ásamt sínu héraði Kleppjárnsreykjahér-
aði. — Magniis Ágústsson, læknir í Reykjavík, settur 30. desember
héraðslæknir í Hveragerðishéraði frá 1. janúar 1950 að telja. — Jón
Sigurðsson, læknir í Reykjavík, settur 30. desember borgarlæknir í
Reykjavík frá 1. janúar 1950 að telja. — Þorgeir Jónsson, settur
héraðslæknir í Þingejnrai'héraði, skipaður 30. desember héraðslæknir
þar.
1. Almenn lækningaleyfi:
Henrik Linnet (1. febrúar).
Erlendur Konráðsson (29. marz).
Gísli Ólafsson (11. maí).
Harald Vigmo (16. júní).
Þórður Möller (31. ágúst).
Sigmundur M. Jónsson (19. október).
Þorgeir Jónsson (30. nóvember).
Þóroddur Jónasson (30. nóvember).
2. S ér f r æ ðingal ey f i:
Friðrik Einarsson, handlækningar og kvensjúkdómar (11. maí).
Grímur Magnússon, tauga- og geðsjúltdómar (12. september).
Harald Vigmo, lyflækningar, sérstaklega lungna- og hjartasjúk-
úómar (18. október).
Sigmundur M. Jónsson, lungnasjúkdómar (19. október).
Skúli Thoroddsen, augnlækningar (19. október).
Hannes Þórai'insson, húð- og kynsjúkdómar (28. nóvember).
Baldur Johnsen, hagnýt heilbrigðisfræði (30. nóvember).
3. Takmörkuð lækningaleyfi:
Tannlækningar:
Ole Færch (7. marz).
Ole Bieltvedt, leyfið bundið við Sauðái'krók (18. október).
Sjúkranudd:
Anna Þórarinsdóttir (4. febrúar).
Torfhildur Helgadóttir (27. desember).
Læknar láta þessa getið:
Akranes. Ljósmóðir má nú heita aðeins ein hér í Akranesumdæxni,
Pvi að Ijósnxóðir sú önnur, sem starfaði í stöku tilfellum og gegndi
17