Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 100
98
Ólafsvíkur. Aðsókn að lækni í meira iagi og töluvert erilsamt. Lang-
mest af aðsókninni var vegna farsótta, þar næst tanndráttur, en eig'i
margt mjög alvarlegra tilfella. Læknisferðir: 5 í Fróðárhrepp, 8 í
Breiðuvíkurhrepp, 3 i Staðarsveit og varla undir 100 á Hellissand.
Bíldudals. Læknis allmikið leitað, einkum af fólki í kaupstaðnum.
Isafj. Aðsókn að læknum mikil á árinu, enda þetta mikið farsóttaár.
Út gefnir lyfseðlar hjá Sjúkrasamlagi ísafjarðar voru 9560 á árinu
á móti 8359 í fyrra. Aðsókn að sjúkrahúsinu fór enn minnkandi,
og voru legudagar 12232 á móti 12640 í fyrra, en það var hið lang-
lægsta fram að þeim tíma.
Árnes. Lengsti tími, sem ég hef dvalizt hjá sjúklingi, er 5 dag'ar.
Heimilisapótek víða mjög stór, en frekar til tjóns en gagns, glös miða-
laus, töflur nafnlausar, en farið eftir gerð, nóg af pensilíni og súlfa í
alls konar formi. Hér er úr vöndu að ráða. Ný og gömul recept í um-
ferð fyrir dýr og inenn; ef héraðslæknir afgreiðir þau ekki, þá fengin
með næstu ferð frá lyfjabúð, en læknirinn missir tiltrú og forgangs-
rétt að vitneskju um lyfjaneyzlu og sjúkdóma héraðsbúa og getur
ekki andæft því, sem miður fer.
Hólmavíkur. 1275 sjúklingar 2481 sinni. Ferðir 88 og sjúkravitjanir
393.
Hvammstanga. Vanhöld á skráningu sjúklinga munu vera nokkur,
því að oft fellur ýmislegt smávegis undan bókfærslu, einkum í ferðuin.
Aðsókn að sjúkraskýlinu nokkru minni en árið áður, fyrra hluta
ársins.
Blönduós. Aðsókn að lækni mun hafa verið með inesta móti, enda
er nú orðið mjög auðvelt fyrir fólk að ná til læknis, þar sem símar
eru á miklum meira hluta allra sveitabæja í héraðinu, en auk þess
fastar áætlunarferðir úr öllum hreppum vegna mjólkurflutninga, og
sparar þetta hvort tveggja lækni oft ferðalög. Læknisferðir voru þó
með meira móti. Farnar voru 109 sjúkravitjunarferðir út um héraðið,
16 ferðir út fyrir héraðið, aðallega til aðstoðar nágrönnum við skurð-
læknisaðgerðir, 9 ferðir til skólaskoðana og auk þess yfir suinartímann
25 áætlunarferðir til Höfðakaupstaðar, þar sem ég liafði fastan viðtals-
tíma tvisvar í viku. Þetta verða alls 159 ferðir og vegalengdin fram
og aftur um 8170 km, en varla var hægt að segja, að komið væri á
hestbak. Áætlunarferðirnar til Höfðakaupstaðar voru farnar eftir
samningi við hreppsnefndina þar, sem greiddi ferðakostnaðinn og
lagði mér til lækningastofu og biðstofu. Mæltist þessi nýbreytni mjög
vel fyrir, enda er hún til mikilla þæginda fyrir fólk í Höfða- og Skaga-
hreppum. Að vísu er varla hægt að koma þessu við með fullri reglu
nema að hafa aðstoðarlækni yfir sumarmánuðina, enda er þá miklu
meira að gera en á vetrum, sem sjá má af því, að af 109 læknis-
ferðum alls ársins voru 59 farnar yfir 4 sumarmánuðina og' áætlunai-
ferðirnar að auki, svo að 30 ferðir komu á inánuð, þegar inest var
að gera.
Sauðárkróks. 2440 sjúklingar, 837 börn, 840 menn og 763 konui-
Sjúklingar á sjúkrahúsinu aðeins 3 færri en árið áður, en legudagai
talsvert fleiri. Auk þeirra sjúklinga, sem lagðir eru inn á sjúkrahúsið,
koma allmargir sjúklingar þangað til ambúlant aðgerða, en þeir eru