Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 224
222
innyflaormar koma fyrir í hrossum, og heymæði er nokkuð algeng,
en yfirleitt eru húsdýr heilbrigð.
Vestmannaeijja. Á síðari árum hefur dregið úr kúadauðanum. í
júnímánuði var skæð blóðkreppusótt í kúm á nokkrum búum. Kennt
var um aðkomnum fóðurbæti.
24. Framfarir til almenningsþrifa.
Læknar láta þessa getið:
Akranes. Sjómannastofa var opnuð hér á Akranesi 6. marz. Hér eru
margir aðkomumenn, sem stunda sjó, en hafa lítil húsakynni og mis-
jafna aðbúð. Fá þeir herbergi til að sofa i, misjafnlega gott og stund-
um margir saman, en geta hvergi látið fara vel um sig á daginn, þegar
verið er í landi. Var því þörf á þessari sjómannastofu. Hún mun hafa
verið reist með samtökum sjómanna- og verkamannafélaganna.
Búðardals. Hafizt var handa um byggingu bifvélaverkstæðis. Var
stofnað hlutafélag í þvi skyni. Verður bifreiðaverkstæði þetta hið
myndarlegasta hús og eflaust til mikils gagns fvrir sýslubúa. í ráði
er að kaupa stærri rafvélar fyrir þorpið, en ekki er vitað, hvernig
því máli lýkur.
Reykhóla. Til almennra framfara í héraðinu get ég því miður ekk-
ert talið. Hið volduga fjái'hagsráð neitaði okkur um fjárfestingar-
leyfi fyrir byggingu tveggja gróðurhúsa að Reykhólum, og var bygg-
ing þeirra þó mjög nauðsynleg, þar eð engin gróðurhús eru hér fyrir,
en nýmetisskortur tilfinnanlegur. Er neitunin því næsta óskiljanleg.
Einnig var neitað fjárfestingarleyfi fyrir byggingu heimavistarskóla
að Reykhólum. Ekkert fé fékkst til nýrrar vatnsveitu á Reykhólum,
sem þó er knýjandi nauðsyn, og þannig mætti lengi telja.
Bíldudals. Lokið var smíði nýrrar bátabryggju hér á Bíldudal. Er
hún steinsteypt, og geta lagzt að henni allt að 100 smálesta bátar.
Er það mjög mikið til hagræðis fyrir bátaútveginn. í haust var rudd-
ur bílvegur með jarðýtu að Fossi í Suðurfjörðum, en eftir er að full-
gera hann. Annað hefur ekki verið unnið að vegagerð hér í Arnar-
firði í ár.
l'lateijrar. Byggð var ný salt- og harðfisksverkunarstöð á Suður-
eyri og lagðar nýjar raftaugar um þorpið. Er í ráði að setja þar upp
nýja rafstöð. Á Flateyri fór fram viðgerð á barnaskólanum og við-
auld við vatnsveituna; byggð var ný brunastöð og bókasafn. Byggt
var nýtt hús fyrir vélsmiðjuna og lítil fiskverkunarstöð reist. Á móti
þessu kemur svo það ólán, að stærsta hús kaupfélagsins brann og
íshúsið Snæfell, sem þar var til húsa, og allt, sem því fylgdi. Hlýzt
af þessu bæði efnalegt og félagslegt tjón.
ísafi. Reist var ný rækjuverksmiðja. Lokið við að byggja yfir vél-
smiðjuna Þór. Er það mikil bygging og býður upp á allt önnur vinnu-
skilyrði en skúrarnir, sein verksmiðjan starfaði í áður. Lokið var við
að byggja 200 metra langt hafnarþil í Neðstakaupstað, en fyrirhugað
er að flytja þangað alla afgreiðslu fiskibáta og togara. Byggð var
varaaflstöð í Engidal til að bæta úr rafmagnsskortinum, og varð að
því mikil bót þegar á þessum vetri, þótt þar með sé eigi til fulls full-