Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 37
35
ust öll börnin, 8 talsins, og auk þess síðar einn fullorðinn, sem verið
hafði gestur á öðrum bænum. Frekari útbreiðsla varð ekki (þó 13
skráðir), og enginn veit, hvaðan smitefnið barst.
Hvammstanga. Stalck sér niður í janúar og febrúar og aftur í júní
°g júlí.
Hlönduós. Hettusótt á slæðingi frá því i ársbyrjun og fram á mitt
sumar. Yfirleitt var hún væg, en þó fékk ungur maður snert af epi-
didymitis og hefur verið lítt vinnufær síðan sökum óþæginda við
areynslu. Verður varla annað séð en þar sé um psychoneurosis að ræða.
Sauðárkróks. Kemur upp í ágústmánuði og smábreiðist svo út, og
verður talsverður faraldur að henni síðustu mánuði ársins. Sumt full-
orðið fólk varð mikið veikt og var lengi að ná sér. 3 menn fengu
orchitis. Á sama tíma sá ég mann með orchitis af ókunnum uppruna.
Hafði hann ekki orðið var við önnur einkenni, en var ekki búinn að fá
hettusótt.
Hofsós. Nokkur tilfelli, en gekk aidrei sem faraldur.
Akuregrar. Barst hingað frá Reykjavík í september, og komu fyrir
nokkur tilfelli þá mánuði, sem eftir voru ársins. Mest var það skóla-
*ólk, sem veiktist, og voru sum tilfellin nokkuð þung.
Vopnafj. Barst tvisvar sinnum inn í héraðið frá Reykjavík, í fyrra
skiptið á afvikinn bæ, Strandhöfn, en breiddist ekki út þaðan; í síðara
skiptið flutti hana frá Reykjavík maður, búsettur hér í kauptúninu.
Haginn, er hann fyrst fann til lasleika, vann hann á skattstofunni.
^mitaði hann þá bónda, sem sat við hlið hans lengi dags, svo og einn
af samstarfsmönnum sínum í skattanefndinni, sem einnig sat mjög nærri
honum. Margir komu á skattstofuna þenna dag, án þess að þeir smit-
uðust. Ekki veiktust aðrir í kauptúninu en þessir 2 skattanefndar-
oienn, enda voru þeir einangraðir, þar til bólga var runnin af þeim.
á heimili bóndans, sem smitaðist á skattstofunni, veiktust, auk hans,
v0na hans og 5 börn. í Strandhöfn fengu 2 sóttina.
Nes. 1 tilfelli í júlí, maður nýkominn frá Suðurnesjum. Breiddist
°kkert út (2 tilfelíi þó skrúð í október).
Húða. Varð vart hér í maimánuði og var viðloðandi fram í septem-
)er- Fáir tóku sóttina. Nokkrir karlmenn fengu hana í testes, og veikt-
llst þeir allir mjög' hastarlega.
Pjúpavogs. Barst frá Reykjavík á Djúpavog og í Breiðdal. Breiddist
’tið út og var væg. 1 unglingspiltur fékk orchitis og lá lengi.
Pfciðabólsstaðar. 1 vafasamt tilfelli.
t ikur. 1 sjúklingur fékk orchitis.
Vestmannaeyja. Barst úr Reykjavík og var yfirleitt væg.
Stórólfshvols. 3 unglingar fengu hettusótt, aílir af sama heimilinu.
hreiddist ekki út.
.Jpyrarbakka. Hefur verið hér á rjátli allt árið, en hægfara þar til
S1ðustu 2 mánuði ársins. Fátt um fylgikvilla.
teflavíkur. Allmikil brögð að hettusótt, einkum framan af árinu.
eilgu margir veikina, og hljóp hún niður í mörgum, einkum sjómönn-
y111’ sei11 héldu áfram að stunda sjó, þótt þeir væru orðnir veikir.
æð veikin þrálátari þess vegna, en batnaði um síðir. Veikin smá-
enaði> eftir að kom fram á sumar.