Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 235
233
frá ónæmiskírteinum varðandi kúabólusetningu, einnig þegar hún er
framkvæmd af öðrum í þeirra umboði. Um þóknun til bólusetjara
í umboði héraðslæknis, fer eftir samkomulagi milli hlutaðeigandi
héraðslæknis og bólusetjara, og að sjálfsögðu eiga héraðslæknar að
vera skaðlausir að greiðslu þeirrar þóknunar.
4. Ferðakostnaður héraðslæknis eða bólusetjara vegna almennrar
kúabólusetningar á ekki að koma til greina, vegna þess að til er ætl-
azt, að almenningur leiti þessara aðgerða eins og hverra annarra lækn-
isaðgerða. Hins vegar er til þess ætlazt, að héraðslæknir geri hér-
aðsbúum sínum sem greiðastan aðgang að kúabólusetningu, bæði
með því að gæta þess að hafa jafnan kúabóluefni tiltækt og hafa
það sem oftast með sér á ferðum sínum, einkum til fjarlægustu staða
héraðs síns.
5. Héraðslæknir gerir ríkissjóði í einu lagi að hverju ári liðnu
reikning fyrir þeirri kúabólusetningu í héraði sínu á árinu, sem greiða
ber beint úr ríkissjóði, án tillits til þess, hvort hann hefur framkvæmt
kúabólusetninguna sjálfur eða aðrir í hans umboði. Reikninginn ritar
hann á þar til gert eyðublað og lætur fylgja skrá um kúabólusetn-
inguna einnig á þar til gerðu eyðublaði.
6. Kúabólusetningarreikningar hvers árs verða úrskurðaðir þannig
nieð hliðsjón af greinargerð, er fylgdi frumvarpi til laga um ónæmis-
aðgerðir, að fullt gjald samkvæmt gjaldskrá héraðsiæknis komi fyrir
eina aðgerð, en hálft gjald fyrir hinar.
Þess er vænzt, að héraðslæknar gæti vandlega eftirleiðis framan-
ritaðs, er þeir gera vir garði reikninga til ríkissjóðs fyrir kúabólu-
setningu.
3. Um frágang og skil á skýrslum héraðslækna.
12. ágúst 1946.
Mjög lengi hefur með réttu verið að því fundið, að útgáfa heil-
brigðisskýrslna dragist i'xr hófi fram. Þetta hefur ekki verið því að
kenna, að skrifstofa mín annaði ekki verkinu, og væri henni ekkert
hægara en koma skýrslunum út fyrir hvert ár, áður en næsta ár er
á enda, og svo þyrfti það að vera. Á hinu hefur staðið að innheimta
skýrslurnar frá héraðslæknunum, sem sumir hverjir trassa skýrslu-
gerð sína langt fram yfir það, sem sómasamlegt getur talizt, og út
úr nokkrum verður að toga hvert blað — jafnvel þau, sem unnt er
að ganga frá á nokkrum mínútum —• með þeim eftirgangsmunum,
að mánuði tekur og ár, og er oft engu líkara en vísvitandi þrjózku
sé um að kenna. Nokkrum sinnum hef ég reynt að lvippa þessu í lag
°g í bili talsvert áunnizt, en jafnharðan sótt í sama horf og alltaf fyrir
hirðuleysi örfárra hlutaðeigandi héraðslækna. Nii hef ég hugsað mér
að gera ýtrustu tilraun til að lagfæra þenna ósóma. Stendur nú
málið svo, að skýrslur 1943 eru í prentun, skýrslur 1944 að verða
tilbúnar í handriti og þó smágloppur i fyrir vanskil nokkurra hér-
aðslækna, og skýrslur 1945 gætu frá hendi skrifstofunnar orðið til-
húnar til prentunar um áramót, ef öll gögn heimtust nú þegar.
Ég sendi bréf þetta öllum héraðslæknum, jafnt skilamönnum sem
öðrum, til halds og trausts. Góði, herra héraðslæknir, ef þér eigið enn
30