Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 12
10
fullorðnu fé, en nokkurt afhroð varð á lömbum, þar sem allt bar í húsi,
og nokkuð króknaði í hreti, sem kom í júní. Sumarið góðviðrasamt.
Meðalþungi dilka um haustið talsvert minni en undanfarin ár og af-
koma bænda því lakari. Gekk því á efni flestra, en þó verður ekki
annað sagt en menn séu almennt vel stæðir fjárhagslega hér í sveit-
unum. Veturinn fram að nýári snjóléttur og góðviðrasamur. Síldveiði
brást, sem kunnugt er, en þó barst til Raufarhafnar meira af síld til
bræðslu en til hinna verksmiðjanna, og mun þvi afkoma hafa orðið
skárri þar en á flestum öðrum síldarstöðvum. Nokkuð var saltað af
síld á einni söltunarstöð á Raufarhöfn. Útgerð eykst þar nú stöðugt.
Fjölgar bæði stærri og smærri bátum. Fiskur er þar allur saltaður.
Vopnafi. Frá því um viku fyrir sumarmál og allt fram uin miðjan
júní var þrotlaus ótíð, bleytuhríðar og fannkoma, svo að ófært var
um héraðið. Allan sauðburðinn varð að hafa fénað allan, jafnt lambær
sem geldfé, í húsum, og skilja þeir einir, sem vel þekkja til í sveitum,
hvað slíkt þýðir. Verður ekki með orðum lýst áhyggjum þeim og
erfiði, sem þetta olli bændum og raunar ölluiu héraðsbúum. Hey gengu
mjög til þurrðar í vorharðindunum, en flestir komust þó af með mik-
illi fóðurbætisgjöf. Lambadauði var á sumum bæjum mjög mikill, en
á öðrum ótrúlega lítill þrátt fyrir inniburðinn. Heildartjónið í sam-
bandi við þetta óvenjulega vonda vor varð gífurlegt. Eftir að upp stytti,
um miðjan júní, mátti heita hagstæð veðrátta allt til áramóta. Gras-
spretta í meðallagi víðast hvar. Kal í túnum var tilfinnanlegt á nokkr-
um bæjum í norðursveitinni. Kartöfluuppskera nokkur, þrátt fyrir það
að útsæði komst ekki niður fyrr en síðustu dagana í júní. Fiskafh
dágóður. Atvinna í landi allmikil við vegagerð, frystihúsbyggingu o.
fl. Afkoma bænda versnaði verulega. Afkoma sjómanna og verka-
manna rnjög svo sæmileg og svipuð því, sem var árið áður.
Bakkagerðis. Tíðarfar yfirleitt óhagstætt, eins og alls staðar her
austanlands a. m. k. Afkoma sæmileg. Þó urðu bændur fyrir miklum
afföllum af sauðfénaði, og kvað sérstaklega mikið að lambadauða
vegna hinna óvenjulegu vorharðinda. í Bakkagerði eru gerðir út H
trillubátar, og fiskuðu þeir sæmilega vel.
SeyÖisfj. Hér austanlands víða skortur fóðurs handa búpeningi og
lambadauði mikill. Fé geklc illa undan, og lömb urðu í rýrara lagi til fra'
lags. Frá miðjum júní til júlíloka var hér sólríkt og heitt, en seinna
part sumars var votviðrasamt, og eins snuggaði snemma að. Gras-
spretta í meðallagi og nýting heyja sæinileg yfirleitt. Garðyrkja með
minna móti vegna hins óvenjukalda vors. Útgerðinni vegnaði ekki vel.
Almenn afkoma fólks má þó kallast góð, og enginn þarfnast sveitar-
styrks, nema þá gamalmenni, að því leyti sem ellilífeyrir hrekkur
ekki til.
Nes. Árferði slæmt síðara hluta vetrar og vor. Óvanalega snöggur
bati upp úr miðjum júní, svo að grasspretta og heynýting varð góð.
Afkoma mun hafa verið allgóð, bæði til lands og sjávar.
Djúpavogs. Heyfengur bænda í minna meðallagi, og kom það bænd-
um illa eftir harðan og kostnaðarsaman vetur, öll hey uppetin og mikil
og dýr fóðurbætiskaup. Til sjávarins var gæftaleysi og lítill fiskur.
Útgerð bar sig illa, en skapaði atvinnu fyrir þá, sem annars hefðu