Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Page 127
125
Stórólfshvols. Fávitar sömu og áður; aðbúnaður virðist ails staðar
vera góður.
Um daufdumba.
Árnes. 1 getur skrifað og kann hrafl i fingramáli. Mun tæpast
geta séð fyrir sér.
Blönduós. 1 unglingsstúlka, 17 ára, er kann bæði fingramál og les
nokkuð á varir.
U m m á 1 h a 11 a.
Sauðárkróks. Engir skráðir, en nokkrir eru lítillega málhaltir.
Um heyrnarlausa.
ísafí. Heyrnarlausir flestir fullorðið fólk.
Árnes. 1 sjálfhjarga, á heyrnartæki, en án þess getur hann ekki
tekið þátt í samtali.
Blönduós. 1 karl, blindur að auki. Tvennt nær því heyrnarlaust
með öllu og 2 unglingsstúlkur með allmikið bilaða heyrn.
Um blinda.
Hafnarfj. Blindraskýrslan er varla tæmandi, og mun eitthvað vera af
sjóndöpru og hálfblindu fólki, sem ég bef ekki getað fengið upplýs-
ingar um.
ísafj. Blindir flestir fullorðið fólk.
Árnes. 2 aldraðar konur ósjálfbjarga og 1 barn, mjög táplítið.
Blönduós. 3 skráðra geta þó farið nokkuð ferða sinna.
Um deyfilyfjaneytendur.
Reijkhóla. Deyfilyfjaneytendur engir i héraðinu.
Hvammstanga. 1 karlmaður með encephalitis chronica hefur um
margra ára skeið notað guttae rosae, tekur nú um 20—30 g daglega.
Ekki skráður fyrr.
Blönduós. 1 kona, hátt á níræðisaldri, dó á árinu. Hafði orðið deyfi-
lyfjaneytandi vegna gallkveisu.
Sauðárkróks. Engir skráðir, cn til álita gætu komið 2—3 gamlar
konur, er talsvert nota af narcotica vegna langvinnra þrauta, sem þær
hafa haft árum saman, og geta þær illa án deyfilyfja verið.
Seyðisfj. Sömu og áður. 69 ára kona mikill vandræðasjúklingur.
Einu sinni tekizt að fá hana á sjúlcrahúsið til lækningar, en þegar
farið var að minnka við hana eitrið, strauk hún heim.
Vestmannaeyja. Sömu og áður. Reynt að halda í við sjúklingana
eftir beztu getu.
Stórólfshvols. 1 karlmaður, 74 ára, notar guttac rosae.