Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Qupperneq 225
223
nægt rafmagnsþörfinni yfir köldustu vetrarmánuðina. Flugskýli var
reist í Suðurtanga.
Ögur. Lokið var við að ryðja veg frá ísafirði til Súðavíkur, um
Arnardal, og fór fyrsta bifreiðin á milli um haustið. Fyrir dyrum
stendur bryggjugerð í Ögurvík, ferjubryggja, en þar á að vera enda-
stöð fyrir landferðir frá Reykjavík að Djúpi.
Árnes. Búin lítil og jarðabætur líka, véltækni engin, enda stunda
flestir bændur aðra tilfallandi vinnu með. Beltisýta nýkomin í hér-
aðið, og telja menn, að skriður komist þá á jarðabætur og vegagerð.
Hreppurinn skuldlaus, á engin fyrirtæki og ekkert frá g'óðærunum.
Sveitarígur mikill á milli þeirra, er búa norðan Reykjarfjarðarheiðar
og hinna sunnan, og skapar það meting og' festuleysi í flestum mál-
efnum hreppsins.
Hólmavíkur. Stækkun hraðfrystihússins á Hólmavík var fullgerð
að öðru leyti en því, að vélar vantar enn, enda húsakynnin notuð
til saltfiskverkunar. Rafveita Hólmavíkur var aukin með stórri diesel-
vél, svo að nú er hægt að fá rafmagn til suðu í þorpinu. Hafin var
bygging beinamjölsverksmiðju til að vinna úr fiskúrgangi þeim, er
til fellur og mikil vandræði hafa verið að losna við og valdið óþrifn-
aði í þorpinu. Verður það væntanlega til þrifnaðarauka, þótt óheppi-
legt sé að hafa starfrækslu slíkra atvinnufyrirtækja í námunda við
eða í íbúðarhverfum þorpsins.
Hvamsstanga. Talsvert uin verklegar framkvæmdir, einkum í jarð-
rækt, með stórvirkum tækjum — tveimur jarðýtum og skurðgröfu —
á vegum búnaðarfélaganna. Byggðar tvær brýr og nokkuð unnið að
nýlagningu vega. Stofnað útgerðarfélag á Hvammstanga, sem fyrr
segir. Byrjað á byggingu fyrirhugaðrar símstöðvar við Hrútafjarðará.
Blönduós. Framfarir til almenningsþrifa urðu ýmsar, að því er
snertir bættar samgöngur og' aukna jarðrækt. Byrjað var á nýrri brú
yfir Blöndu í Blöndudal, og mun hún kosta um 2 milljónir. Brú var
°g gerð á Álku í Vatnsdal, unnið að bryggjugerð á Blönduósi, og fór
sú bryggja aftur i sjóinn, eins og siður er hafnarmannvirkja í fyrstu
atrennu. Þá var og unnið nokkuð að hafnargerðinni á Skagaströnd og
hafin þar bygging' fiskmjölsverksmiðju. Rafstöðin á Blönduósi, sem
er orðin allt of lítil, var aukin með dieselvélasamstæðu. Blönduós-
hreppur byggði hús yfir húsnæðislaust fólk, og kostaði sú framkvæmd
um 300 þúsund krónur. Þá var og gerður flugvöllur í sandinum
austan Húnavatns fyrir norðan Akur, en þar er landrými mikið,
langt til fjalla og hægt að hafa gagn af radíóvitanum á Kálfshamars-
nesi við lendingu í dimmviðri. Er þetta talið álitlegur staður sem
þrautalending við millilandaflug, og er nú haldið uppi föstum flug-
ferðum á stað þenna.
Sauðárkróks. Lokið við virkjun Gönguskarðsár, settar niður vélar,
og tók stöðin til starfa seint á árinu. Enn þá vantar þó efni til tveggja
spennistöðva, svo að allur bærinn getur ekki enn þá fengið frá henni
rafmagn, enda ekki búið að endurbæta innanbæjarkerfið að fullu.
Frá þessari rafstöð verður veitt rafmagni fram um sveitina að Varma-
hlíð, og var lokið við að koma því fram að Glaumbæ. Kaupfélagið
hefur í smíðum stórt sláturhús og hraðfrystihús, en óvíst mun, hve-