Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 252
250
haldi 13. marz lagði dómarinn fram svohljóðandi spurningar, er verj-
andi óskaði, að lagðar yrðu fyrir yfirlækni handlæknisdeildar Land-
spítalans, Guðm. próf. Thoroddsen:
„1. Teljið þér líklegt, að himnustunga framkvæmd á G. Ó-dóttur
kl. 10.30—11 f. h. hefði getað framkallað hjá henni fósturlát, svo að
legið hefði verið búið að hreinsa sig að mestu af egghlutum um kl.
4 síðdegis sama dag?
2. Hefði fósturlát samt orðið þennan dag, er þá líklegt, að blæð-
ing hafi ekki verið meiri en svo, að aðeins sást lítils háttar blæðing
innst í vagina, en ekkert á ytri kynfærum við skoðun á Landspítal-
anum um kl. 7 sama kvöld?
3. Er sennilegt, að fóstur og mestur hluti fylgju eða egghluta hafi
farið forgörðum eða týnzt, ef G. Ó-dóttir hefði misst fóstur sitt, eftir
að hún kom á Landspítalann?
4. 1 skýrslu yðar, dags. 28. apríl 1949, segið þér, að leg G. hafi
virzt lítið eitt stælckað, nokkuð mjúkt á pörtum og vel hreyfanlegt,
og í réttarhaldi 13. maí 1949 teljið þér ekki ósennilegt, að stúlkan
hafi verið í 2. mánuði meðgöngutímans. Teljið þér líklegt, að svipuð
stærð og mýkt legsins geti skýrzt af því, að fósturlát hafi átt sér
stað nokkrum dögum áður eða næstu daga á undan því, að G. Ó-dóttir
kom til J. S-sonar læknis?
5. 1 skýrslu yðar, dags. 28. apríl 1949, getið þér um lítils háttar
blóð í leggöngum. Getur það skýrzt af því, að fósturlát hafi þegar
átt sér stað, er G. kom á spítalann, og legið verið búið að tæma sig
af öllum egghlutum nema þeim (hluta), sem seinna fannst koma frá
G. Ó-dóttur?
6. Á hvað getur það bent, að ekki fannst slímtappi i legopi G.
Ó-dóttur?
7. Geta konur misst fóstur án þess að verða þess varar?
8. Getur egg klofnað og gengið niður í hluturn án utanaðkomandi
áhrifa?
9. Klukkan hvað kom G. Ó-dóttir á Landspítalann 26. apríl 1949?
10. Tókuð þér þá strax við henni?
Þessum spurningum svaraði yfirlæknirinn í réttinum á þessa leið:
Ad 1) „Nei, ég tel það ekki líklegt vegna þess, að reynsla er fyrir
því, að himnustunga er mjög seinvirk aðferð til þess að framkalla
fósturlát á fyrri mánuðum meðgöngutímans. 1 þessu sambandi vil ég
taka fram, að við himnustungu tæmist legvatnið úr egginu með þeim
afleiðingum, að fóstrið deyr, og þá fyrst fer legið að reyna að losa
sig við það með hríðum. Þetta tekur oft langan tínxa vegna þess, að
átak legsins á eggið verður lélegt, þegar það er saman fallið, eftir að
vatnið hefur tæmzt úr því. Þetta á sérstaklega við um fyrstu mán-
uði meðgöngutímans.“
1 sambandi við spurningu nr. 1 á rskj. nr. 2 (þ. e. þessa spurningu),
æskir skipaður sækjandi málsins, að vitnið sé spurt að því, hvort
legið í ákærðu G. Ó-dóttur hafi verið búið að hiæinsa sig að mestu
af egghlutum, þegar vitnið sá hana fyrst í Landspítalanum.
Þessari spurningu svarar vitnið þannig:
„Meðan G. ó-dóttir var sjúklingur í Landspítalanum, fannst ekki,