Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 288
286
son prófessor, hefur fyrir rétti 25. maí 1951 látið uppi svofellt álit
um dánarorsök lconunnar:
„Þar sem sannað er, að pentemalnatrium fannst í maga og lifur
konunnar í nægilegu magni til að valda dauða hennar, tel ég alveg
ótvírætt, að dauði hennar hafi getað stafað af því. Þar sem um natri-
umsalt er að ræða, er það mjög fljótvirkt vegna þess, að það er auð-
leyst í vatni og síast þess vegna fljótt úr meltingarveginum yfir í
blóðið, sem ber það til lifrarinnar, en þaðan berst það áfram með
blóðinu út um allan líkamann, en verkar sérstaklega á taugakerfið,
m. a. á öndunarstöðvarnar, fyrst venjulega æsandi, en síðan lamandi,
þannig að viðkomandi sofnar djúpum svefni, sem getur endað með
skyndilegum dauða, ef nægilegt magn er fyrir hendi til að lama önd-
unarstöðvarnar. Deyr þá sjúklingurinn köfnunardauða af súrefnis-
skorti, verður blár, og það var þessi kona, er ég kom á staðinn, sér-
staklega á eyrum og aftan til á höfði, en konan lá á bakinu. Upplýst
er, að vínlykt var af magainnihaldinu og kann vínandi að hafa stuðl-
að að því, að lyfið hafi síazt enn fljótar út í blóðið en annars mundi,
og hafi því magn lyfsins í blóðinu orðið meira á skömmum tíma
vegna þessa. Valdi pentemalnatrium dauða á annað borð, gerist það
mjög fljótt, vegna andardráttarlömunar oftast, en stundum vegna
blóðrásarlömunar. Verkanir þess standa stutt, og' tel ég mjög ósenni-
Jegt, að þetta lyf valdi nokkurn tíma dauða eftir langan tíma.
Hvað tíminn geti verið stytztur frá því að svo uppleysanlegt meðal
er tekið inn, þar til það getur valdið dauða, fer fyrst og fremst eftir
því, í hve miklu magni það er tekið, en sé um nægilegt magn að
ræða til að valda dauða, tel ég, að ekki þurfi nauðsynlega að líða
lengri tími en fimmtán mínútur frá inntöku, þangað til andlát virðist
hafa borið að.“
Málið er lagt fgrir læknaráð á þá leið,
að beiðzt er, „að læknaráð láti í ljós álit sitt á því ósamræmi", sem
fram hefur komið hjá sérfræðingum við rannsókn málsins, „um hve
langur tími geti stytzt liðið frá inntöku meðals þess, sem um ræðir
i (lögreglu)skýrslunni, til dauða.“
Tillaga réttarmáladeildar um
ÁUjktun læknaráðs:
Læknaráð telur mjög ósennilegt, að 24—50 töflur af pentemal-
natrium geti valdið dauða innan 15 minútna, þó að þær séu teknar
inn i einu.
Á hinn bóginn vill læknaráð benda á, að tímaákvarðanirnar í mál-
inu eru mjög ónákvæmar, en tvímælalaust virðist, samkvæmt þeim
rannsóknum, sem fram hafa farið, að umrætt lyf hafi valdið dauða
konunnar.
Við meðferð málsins í réttarmáladeild vék einn nefndarmaður sæti,
kennarinn í réttarlæknisfræði við háskólann, Níels prófessor Dungal.