Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 81
79
benzamin og antistín dró bezt úr köstunum. Hafði hún haft þenna
kvilla, síðan hún var tveggja ára.
Flateyrar. Nokkuð tíður kvilli. Skráð 9 tilfelli, 4 krónisk.
Bolungarvíkur. Hér eru 3 asthmaveik börn, og má það teljast há
tala, en orsök hef ég ekki enn fundið, nema hjá einu (ull).
Hvammstanga. 4 ný tilfelli, 1 þrálátt, karlmaður um fimmtugt.
Blönduós. Alls ekki fátíður sjúkdómur og mun heldur fara í vöxt,
eftir því sem taugakerfið úrkynjast í mannfólkinu. Hér eru 3 ungiings-
stúlkur með þenna sjúkdóm, að vísu á vægu stigi, 2 konur og 1 karl-
niaður, öll miðaldra, og 1 gömul kona. Enn fremur voru hér fyrir
nokkrum árum 1 roskin kona og maður á fertugsaldri, sem fengu
svæsin asthmaköst, en virðast nú vera orðin albata. Hefur þar sjálf-
sagt verið um allergie að ræða fyrir einhverjum agens heima fyrir,
sem þau eru nú laus við, enda skipti annað þeirra um verustað.
Kópaskers. Nokkur væg tilfelli.
Vopnafi. 2 tilfelli.
Nes. Nokkrir sjúklingar króniskir, 2 þeirra hafa fengið slæm köst.
Búða. Enginn nýr sjúklingur bætzt við á árinu. Nokkrir hinna gömlu
sjúklinga hafa leitað til Reykjavíkur, en árangurinn því miður lítill.
Brciðabólsstaðar. Sjúklingur héðan lézt í status asthmaticus á Lands-
spítalanum.
Vestmannaeyja. í héraðinu eru nú 6 sjúklingar með veikina, en hafa
þolanlega heilsu með notkun lyfja. Fá slæm köst með köflum, einkum
Þegar kvef gengur.
8. Avitaminosis.
Beykhóla. Ekkert virðist bera á A- og D-fjörefnaskorti hér, enda er
fólk mjög áhugasamt um að gefa börnum lýsi á vetrum, en alltaf koma
fyrir nokkur tilfelli árlega, sem benda eindregið á hypovitaminosis B
°g C.
Bíldudals. Engin ótvíræð tilfelli hef ég séð, en vanþrif og lystarleysi
1 börnum, sem helzt gerir vart við sig snemma á vorin og engin sér-
stök orsök finnst til, lagast fljótt við C- og B-vítamíngjöf. Flestöllum
börnum er liér gefið lýsi.
Flateyrar. Verður vart öðru hverju, er af öllum gerðum og kemur
vart á óvart, jafnskipulagslaust og átið er hér á landi. Efnaskortur
þessi kemur siundum fram í fólki, sem virðist lifa við góð kjör. Skyr-
b.l’úg sá ég í sumar í tvítugum pilti af góðu sveitaheimili og frú í góð-
um efnum á Flateyri. Ekki dugði þeiin skarfakálsát eða slíkt, en batn-
aÖi fljótt við injectionir. Nokkur beinkramartilfelli eru sltráð, en öll
létt. B-fj örviskortur virðist all-útbreiddur og kemur fram í þróttleysi,
b°fa í höndum og margs konar verkjum hér og þar i líkamanum.
Hólmavíkur. Alltaf allmörg beinkramarbörn, þrátt fyrir almennar
lýsisgjafir.
Hvammstanga. Beinkröm 2 tilfelli, börn á 1. ári, sem höfðu þó bæði
engið lýsi, en einnig ýmsan feitan og fitandi kost, svo sem rjóma,
enda voru þau bæði mjög feit. Taldi ég þetta aðalorsök sjúkdómsins
°g ráðlagði fyrst og fremst breytingu á mataræði barnanna. Talsvert