Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 217
215
en sjá um, að árleg hreinsun fari fram á vorin á lóðum í kauptún-
unum.
Sauðárkróks. Heilbrigðisnefnd Sauðárkróks leit eftir þrifnaði utan
húss eins og venjulega. Mestur óþrifnaður er að haugum og haug-
húsum, því að aldrei er svo frá þeim gengið, að hreinlegt verði i
kringum þau.
Ólafsfi. Lítið starf liggur eftir nefndina, enda þungur róður. Með-
nefndarmenn venjulega án nokkurrar þekkingar á mörgum málum
og hliðra sér hjá að ganga á móti hagsmunum einstaklinga og fjn-ir-
tækja. Verður því nefndarstarfið oft „klára húmbúg“ og verr farið
cn heima setið.
Akureyrar. Eins og undanfarandi ár voru fastir fundir í heilbrigðis-
nefndinni einu sinni í mánuði og auk þess aulcafundir, þegar til-
cfni gafst til. En hið sama má segja um starf nefndarinnar og árið
úður, að langsamlega mest af þeim störfum, sem nefndinni heyra til,
unnu þeir héraðslæknir og heilbrigðisfulltrúi, án þess að til nefndai’-
innar kasta þyrfti að koina, en öll meira háttar atriði voru lögð fyrir
nefndina.
Seyðisfi. Heilbrigðisnefnd hélt einn fundi á árinu. Hin venjulega
hreinlætiseftirlitsferð um bæinn að vorinu féll niður að þessu sinni.
hæði var héraðslæknir ekki heima, og svo voraði aldrei.
Vestmannaeyja. Nefndin reynir að auka þrifnað á öllum stöðum
eftir föngum, og er heilbrigðisfulltrúi stöðugt að líta eftir því, að
þrifið sé til, þar sem þörf krefur.
20. Bólusetningar.
Tafla XIX.
Skýrslur og reikningar um kúabólusetningu hafa borizt úr öllum
néruðum nema 11 (Kleppjárnsreykja, Ólafsvíkur, Reykhóla, Hest-
eyrar, Hólmavíkur, Blönduós, Grenivíkur, Þórshafnar, Vopnafj., Egils-
staða og Seyðisfj.). Mun bólusetning hafa farizt fyrir í þeim hér-
uðum og þá í sumum þeirra vegna farsótta. Ná skýrslurnar til 2425
Jruinbólusettra og 2263 endurbólusettra barna. Kom bólan út á 78%
ninna frumbólusettu og einnig á 78% hinna endurbólusettu.
Læknar láta þessa getið:
Hafnarfi. Bólusetning fór fram að venju. Bólan kom vel út.
Rcykhóla. Fór því miður ekki fram í héraðinu.
pildiidals. Bólusetning hafði fallið niður tvö síðast liðin ár, en nú
hólusetti ég öll skólabörn á Bíldudal, um leið og skólaskoðun fór fram.
J sveitunum voru flestöll börn einnig bólusett.
Flateyrar. Bólusett í öllu héraðinu með góðum árangri.
Isafi. Frumbólusetningar fórust fyrir vegna farsótta, en endurbólu-
setning fór fram um vorið, eins og venjulega.
Arnes. 2 börn fengu igerð í útkomuna og ofholdgun. Engin urðu
alvarlega veik, en mörg fengu hita.
nólmavikur. Bólusetningar féllu niður i héraðinu, bæði vegna slæms
heilsufars í börnum um vorið, og' mér þótti meiri þörf á að Ijúka