Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 28
26
Búða. Með svipuðum hætti og undanfarin ár og nú sem oftast áður
efst á blaði farsótta.
Djúpavogs. Kvef viðloðandi allt árið, en aldrei slæmt.
Breiðabólsstaðar. 1 júlí gekk vægur kveffaraldur, um það bil sem
önnur inflúenzualdan var að fjara út. Kann sumt af því að hafa verið
væg inflúenza. Mjög slæmt lcvef gekk hér mánuðina október—desem-
ber með ýmsum fylgikvillum, aðallega miðeyrabólgu og lungnabólgu.
Tel ég, að hér hafi þó ekki verið um þriðja inflúenzufaraldurinn að
ræða, þó að inflúenza muni hafa gengið í Reykjavík og víðar um líkt
leyti. Það álít ég, vegna þess hve súlfalyfin höfðu skjót og góð áhrif,
auk þess sem flest inflúenzueinkenni vantaði, svo sem beinverki og
höfuðverk. Annars er erfitt að vera viss í sinni sök í þessu efni.
Víkur. Miklu vægari og einnig færri sjúklingar en árið áður.
Vestmannaegja. Gengið alla mánuði ársins. í júlí lagðist kvefveiki
þungt á börn og sömuleiðis í október, enda var veikin þá um tírna
talsvert útbreidd. Úr veikinni fór að draga undir áramótin.
Stórólfshvols. Fyrstu 4 mánuði ársins bar mjög lítið á kvefsótt hér.
Býst við, að það hafi verið samgönguerfiðleikunum að þakka, því að
strax og samgöngur urðu tíðari, fór hiin að gera vart við sig, mest
yfir sumarmánuðina; allslæm á köflum.
Egrarbakka. Fjöldi tilfella mánaðarlega allt árið, einkum fyrstu og
síðustu mánuði ársins.
Keflavíkur. Um hana eklcert sérstakt að segja, nema þess má geta,
að í mánaðarskrár af Keflavíkurflugvelli eru mjög margir sjúklingar
skráðir með kvefsótt. Koma víst flestir sjúklinganna til sjúkrahússins
þar til úðunar eða penslunar eða annarrar ókeypis meðferðar og eru
þá skráðir.
3. Barnaveiki (diphtheria),
Töflur II, III og IV, 3.
Sjúklingafjöldi 1940—1949:
1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947 1948 1949
Sjúkl........ 4 9 11 63 1 1 3 2 „ 1
Dánir ....... 1 1 1 2 „ „ 2 1 1 »
Skráð 1 tilfelli, í Keflavíkurhéraði, en e. t. v. af vangá, sbr. ummæli
héraðslæknis þar hér á eftir. Ef svo hefur verið, hefur barnaveiki
ekki orðið vart í landinu tvö siðastliðin ár, enda er kappsamlega bólu-
sett gegn veikinni víða um land.
Læknar láta þessa getið:
Hafnarfj. Varð ekki vart á árinu. Bólusetning gegn barnaveiki hefur
farið fram og öllum gefinn kostur á að láta bólusetja börn sín. Hafa
margir notfært sér það, en þó ekki nærri því allir.
ísafj. Ekkert tilfelli. Bólusetning fór fram um haustið með kikhósta-
bólusetningunni, en nú var tekinn upp sá siður að bólusetja samtímis
við þessuin tveimur kvillum.
Árnes. f lok september ferðaðist ég á hvern bæ og bólusetti nú i
þriðja sinn.
Hólmavikur. Aldrei vart. Lokið var við ónæmisaðgerð á allflestum