Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Side 125
123
hún var sótt. Heim var ekki hægt að fara með hana — húsið fullt af
börnum. Bærinn leigði því herbergi hér fyrir hana; það fékkst aðeins
í mánuð. Ja, hvert átti þá að fara með hana? Náttúrlega bara heim.
Ekki var hægt að fleygja henni út. Allt þetta kostaði of fjár og allt til
einskis. Fyrst flugvél héðan beint til Reykjavíkur, sjúkrahúsdvölin,
flugferð norður aftur ásamt hjúkrunarkonu og gæzlufólki á öllu ferða-
laginu. Kostnaður milli 5 og 10 þúsund krónur. Ég held, að sýna ætti
útlendingum fleira en Reykjalund, þótt gaman sé. Þeir ættu líka að
fá að sjá vitfirringana í tugthúsinu. Þá mundu þeir fá réttari hug-
mynd um ástandið. Að sýna það, sein bezt er, en leyna hinu, minnir
allt of mikið á Rússíá. Væri ekki hægt að drífa upp sæmilega geymslu
fyrir þetta fólk, svo að ekki sé nú farið fram á hæli, mætti ekki dubba
eitthvað upp á einhvern kirkjuhjallinn, sem stendur galtómur. Ég
held, að það mundi vera guði sérlega þóknanlegt.1)
Kópaskers. 3 menn hafa öðru hverju á skýrslum undanfarinna ára
verið taldir geðveikir, en þeir eru nú allir hraustir.
Seyðisfí. í fyrsta sinn skrásettur geðveiltur sjúklingur, sem er 51 árs
kona, og hefur hennar verið getið áður.
Búða. Þau 10 ár, sem ég hef starfað hér, hafa hér verið 2 aldraðir
menn með psychosis maniodepressiva. Eru nú báðir örvasa. Hef ekki
getið þeirra áður, enda ekki verið teljandi vandræði í sambandi
við þá.
Vestmannaeyja. Eins og áður vantar geðveikraskýli. Svona sjúk-
lingar eiga ekki að vera á almennum sjúkrahúsum.
Stórólfshvols. 1 geðveikur maður dvelst í héraðinu og er til skiptis
á heimilum í sveitinni. Hann er oftast rólegur, en fær þó stundum
slæm óróaköst. Óviðunandi ástand. Hef von um, að hann komist á
Klepp á næsta ári.
U m f á v i t a.
Hafnarfj. Fávitar eru 6, sem mér er kunnugt um.
Ögur. Aukning skráðra kemur aðallega til af því, að ég gerði í vor
gangskör að því að rannsaka fjölskyldu eina, sem var nýflutt af
Ströndum í Djúpið, og má það með sanni kallast vandræðafjölskylda.
Börnin eru nú orðin 13, 6 mánaða til 16 ára gömul, 12 á lífi, og dvelj-
ast 10 þeirra í héraðinu, líklegast allt fávitar, en 8 talin á fávitaskýrslu.
Fjölskyldan lifir á fjölskyldubótum, auk nokkurra landafurða, þang-
að til örorkustyrkir væntanlega taka við. Við athugun á heimilinu
kom þetta í ljós: Foreldrar ekki áberandi öðru vísi en fólk gerist yfir-
leitt, og' hafði báðum gengið sæmilega að læra; bæði læs og skrifandi.
Ekkert barnanna, sem heima voru, gat talizt altalandi, hin eldri
1) Undarlega fer fram hjá héraðslækninum, aS í sjálfum Ólafsfirði er skráð
5 rúma sjúkraskýli, reist með ríflegum styrk úr ríkissjóði, hin snotrustu húsa-
kynni, enda lengi rekið með hinni mestu prýði. Nú hefur sjúkraskýli þetta ekki verið
rekið árum saman, þrátt fyrir ærna þörf staðarins, svo sem berlega er ljóst af
þessari átakanlegu lýsingu héraðslæknisins. í stað þess eru hinir uinkomulausustu
sjúklingar sendir jafnvel í algeru greinaleysi til annarra sveitarfélaga, og stendur
ekki á vandlætingunni, ef þau eru ekki viðbúin vandanum. í Ólafsfirði er meira
að segja einnig kirkja.