Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 60
58
0— 7 ára: 1850, þar af jákvæð 59 eða
7—14 —: 6337, — 579 —
14—20 —: 1682, — 296 —
Yfir 20 —: 937, — 343 —
Skýrsla berklayfirlæknis 1949.
Árið 1949 voru framkvæmdar berldarannsóknir (aðallega röntgen-
rannsóknir) í 14 læknishéruðum. Voru alls rannsakaðir 27746 manns,
á 6 heilsuverndarstöðvum 21170, aðallega úr 7 læknishéruðum (berkla-
rannsóknir í Hafnarfirði eru enn framkvæmdar af heilsuverndarstöð-
inni í Reykjavík), en með ferðaröntgentækjum 7522 manns, aðallega
úr 7 læknishéruðum (946 manns voru bæði rannsakaðir á heilsu-
verndarstöð og með ferðaröntgentækjum). Fjöldi rannsókna er hins
vegar langtum meiri, þar eð margir koma oftar en einu sinni til
rannsóknar, einkum á stöðvarnar. Námu þær alls 37738 á árinu.
Árangur rannsókna heilsuverndarstöðvanna er greindur sérstaklega
(sbr. bls. 135—137). Af 690, sem rannsakaðir voru með litlum ferðarönt-
gentækjum í 7 Iæknishéruðum, voru 6, eða 0,9%, taldir hafa virka
berklaveiki. 4 þeirra, eða 0,6%, voru áður óþekktir. Þessum rannsókn-
um var hagað eins og að undanförnu og aðallega rannsakaðir nem-
endur og starfsfólk héraðsskólanna og fólk samkvæmt vali héraðs-
lækna. Heildarrannsókn var framkvæmd á Akureyri og Glerárþorpið
rannsakað með kaupstaðnum. Voru hin stóru photoröntgenferðatæki,
sem getið er um í Heilbrigðisskýrslum 1948, en tekin voru í notkun í
aprílmánuði á þessu ári, notuð við þessa rannsókn. Rannsóknin var
framkvæmd í júnímánuði og tók tæpan hálfan mánuð, en héraðslækn-
irinn hafði áður séð um framkvæmd berklaprófs á öllum börnum
upp að 13 ára aldri. Alls voru rannsakaðir á Akureyri 6832 manns,
en það voru 99,4% þeirra, er taldir voru geta komið til rannsóknar-
innar, 40, eða 0,6%, hinna rannsökuðu, reyndust hafa virka berkla-
veiki. 8 þeirra, eða 1,2%B, voru áður óþekktir. Einn þeirra var utan-
bæjarmaður, en dvaldist í kaupstaðnum, er rannsóknin fór frarn. 27
sjúklingar, eða 0,4% hinna rannsökuðu, voru taldir þurfa eftirlits
með. 9 þeirra, eða l,3%ot voru áður óþekktir. Urðu 2 þeirra síðan
virkir á árinu. Berklaprófið var framkvæmt á fólki upp að 30 ára
aldri. Moroaðferð var notuð upp að 13 ára aldri. Mantouxpróf eftir
það, í þynningum 1 og 100. Alls voru þannig prófaðir 3006 manns.
Árangur prófsins var sem greinir í eftirfarandi töflu:
Fjöldi rannsakaðra % jákvæðra
Aldur Samtals Konur Karlar Samtals Konur Karlar
0— 4 754 359 395 3,1 2,8 3,3
5— 9 667 345 322 6,2 7,3 5,0
10—14 518 257 261 12,7 14,0 11,5
15—19 434 226 208 17,5 15,9 19,2
20—24 342 191 151 25,4 26,7 23,8
25—29 291 175 116 47,1 42,9 53,4
0—29 3006 1553 1453 14,3 15,0 13,6