Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Síða 106
104
5. 34 ára g. verkamanni í Reykjavík. Vanfær í 9. sinn og komin 9
vikur á leið. 7 fæðingar og 1 fósturlát á 12 árum. 6 börn (12, 10,
8, 4, 3 og 2 ára) í umsjá móðurinnar. íbúð: Léleg og heilsuspill-
andi að dómi héraðslæknis. Fjárhagsástæður: Slæmar.
S j ú k d ó m u r : Depressio mentis psychogenes.
Félagslegar ástæður: Fátækt. Ómegð. Drykkjuskapur
eiginmanns. Heilsuspillandi húsakynni.
6. 37 ára g. verzlunarmanni í Reykjavík. Vanfær í 6. sinn og komin
8 vikur á leið. 5 fæðingar á 8 árum, 5 börn (8, 5, 3, 2 og %2 árs)
í umsjá móðurinnar. Ibúð: 2 herbergja íbúð, þröng, en að öðru
leyti góð. Fjárhagsástæður: Fjárhagur þröngur vegna ómegðar.
Sjúkdómur: Depressio mentis psychogenes. Tentamen suicidii.
Félagslegar ástæður: Fátækt. Tíðar barneignir.
7. 26 ára g. bílstjóra í Reykjavík. Vanfær í 5. sinn og komin 8 vikur
á leið. 3 fæðingar og 1 fósturlát á 4 árum. 3 börn (4, 3, 1% árs)
í umsjá móðurinnar. íbúð: 2 herbergi og eldhús til haustsins;
eftir það húsnæðislaus. Fjárhagsástæður: Lélegar (kr. 14000,00).
Sjúkdómur: Depressio mentis.
Félagslegar ástæður: Fátækt. Vöntun húshjálpar. Eigin-
maðurinn getur tæplega stundað vinnu vegna ástands konunnar.
8. 28 ára g. verkstjóra í Reykjavík. Vanfær í 4. sinn og komin 8—9
vikur á leið. 3 fæðingar á 5 árum. 3 börn (5, 4 og 2 ára) í umsjá
móðurinnar. íbúð: Léleg húsakynni, einkum köld. Fjárhagsástæð-
ur: Erfiðar nú vegna sjúkdóms fyrirvinnu.
Sjúkdómur: Depressio mentis. Commotionis cerebri sequelae.
Félagslegar ástæður: Eiginmaður liggur á sjúkrahúsi með
coxitis tuberculosa.
9. 39 ára g. .. .verði í Reykjavík. Vanfær i 7. sinn og komin 8—9
vikur á leið, 6 fæðingar á 14 árum. 6 börn (14, 11, 6, 3, 2 og 1
árs) í umsjá móðurinnar. íbúð: Litil 2 herbergja íbúð; slæm húsa-
kynni, slag'i og kuldi. Fjárhagsástæður: Lágar tekjur og slæm
afkoma.
Sjúkdómur: Depressio mentis psychogenes.
Félagslegarástæður: Fjárhagsörðugleikar. Vanheilsa eigin-
manns. Léleg húsakynni. Ómegð.
10. 37 ára g. verkstjóra í Reykjavik. Vanfær í 4. sinn og komin 9
vikur á íeið. 3 fæðingar á 7 árum. 3 börn (7, 4 og 2 ára) i umsjá
móðurinnar. íbúð: 1 herbergi og eldhús. Fjárhagsástæður: Kr.
28000,00 árstekjur.
Sjúkdómur: Depressio mentis. Hyperemesis.
Félagslegar ástæður: Fátækt. Léleg húsalcynni. Skortur
húshjálpar.
11. 23 ára óg. hjá foreldrum sínum í Vestmannaeyjum. Vanfær í 2.
sinn og komin 8 vikur á leið. 1 fæðing fyrir IV2 ári. 1 barn (.IV2