Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Síða 205
203
Sauðárkróks. Meðferð ungbarna má teljast góð. Þó mun konum
hætta við að hafa börn sín of stutt á brjósti og bera ýmsu við.
Ólafsfi. Yfirleitt góð. Flest fá brjóstamjóllt, að minnsta kosti fyrst
i stað, og flestum gefið lýsi.
Dalvíkur. Mun vera góð hér um slóðir. Leiðbeiningar þær um með-
ferð ungbarna, er landlæknir hefur látið gefa út, eru hinar þörfustu
og mikið eftir þeim farið.
Grenivíkur. Góð. Öll börn fá snemma lýsi og móðurmjólkina flest.
Það helzta, sem þau mun skorta, er C-vitamín, því að um ávexti er
ekki að ræða. Tel ég ekki, þó að hvert heimili fái nokkur epli fyrir
jólin. Appelsínur sáust ekki á árinu, en einstaka sinnum sítrónur.
Bakkagerðis. Hygg sæmilega.
Breiðabólsstaðar. Góð, enginn barnadauði.
Vestmannaeyja. Börn höfð of stutt á brjósti. Meðferð ungbarna fer
stöðugt batnandi. Ungbarnadauði hverfandi. Eftirlit hjúkrunarkonu
heilsuverndarstöðvar með ungbörnum hefur stórum bætt meðferð
þeirra og heilsu.
9. íþróttir.
Læknar láta þessa getið:
Akraness. Áhugi á iðkun íþrótta hefur ekki dofnað. íþróttafélög
þau, sem hér hafa starfað, virðast lifa góðu lífi.
Búðardals. Íþróttalíf ekkert.
Reykhóla. íþróttir töluvert stundaðar, en þó fyrst og fremst sund-
íþróttin og þá aðallega í sambandi við barna- og unglingaskóla að
Reykhólum.
Bíldudals. íþróttir stundaðar nokkuð, og starfar hér eitt íþróttafélag,
íþróttafélag Bílddælinga. Leikfimiskennsla skólabarna mun hafa verið
i molum í ár, en öll börn sækja sundnámskeið fyrir fullnaðarpróf.
Árnes. Engar íþróttir stundaðar.
Hvammstanga. Íþróttalíf ekkert og lítill eða enginn áhugi sjáan-
legur í því efni meðal þeirra fáu ungmenna, er enn hírast heima i hér-
aðinu. íþróttir, leikfimi, sund, knattspyrna o. s. frv. að sjálfsögðu
kennt og iðkað í Reykjaskóla.
Blönduós. Íþróttalíf hefur aukizt nokkuð hin síðari ár, og er farið
að halda íþróttamót á vegum Ung'mennasambandsins vor hvert 17.
júní. Leikfimskennari er nú ráðinn nokkurn hluta námsársins hér á
Blönduósi við barnaskólann og Kvennaskólann, sem eiga i sameiningu
hið myndarlega leikfimishús, sem er áfast við barnaskólann nýja.
Sauðárkróks. Fastur íþróttakennari starfaði við skólana, eins og að
Undanförnu. Kennir liann einnig sund í Varmahlíð á vorin. íþróttir
eru nokkuð stundaðar almennt, laæði innan húss og utan. Skiðaferðir
eru einnig iðkaðar, þegar snjór er til þess. Axel Andrésson íþrótta-
kennari dvaldist um tíma á Sauðárkróki og kenndi kattspyrnu og
handknattleik.
Ólafsfi. Heldur daufur íþróttaáhugi. Minna um skíðaiðkanir en ver-
ið hefur. Fimleikar stundaðir fyrst og fremst í barna- og unglinga-
skóla, eftir að hið nýja fimleikahús barnaskólans var tekið í notkun.