Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Síða 41
39
Akureijrar. Barst hingað í septeraber, líklega frá Reykjavík. Sjúk-
dómurinn breiddist dálitið út. Var yfirleitt mjög léttur, enda í öllum
tilfellunum gefið pensilín, og var eigi öðrum sóttvörnum beitt. Fór
nokkuð eftir aldri sjúklingsins, hve mikil pensilíngjöfin var, en venju-
legast var það frá 1—1% milljón eininga, sem gefið var á 5 dögum.
Virtist þetta gefast ágætlega, og kom hvergi til þess, að fleiri en eitt
tilfelli kæmi fyrir í sama húsi, ef í sjúklinginn náðist á 1., 2. eða 3.
degi sjúkdómsins. Aðeins í cinu tilfelli vissi ég til þess, að sjúklingur,
sem gefið var pensilín, smitaði frá sér, eftir að byrjað var á pensilín-
gjöfinni, og var það eflaust af því, að gefinn var of lítill skammtur,
en í þessu tilfelli hafði vegna misskilnings verið gefinn aðeins % sá
skammtur, sem læknirinn hafði fyrirskipað. Um sjúkdóminn virðist
mér yfirleitt mega segja, að með því að gefa pensilín í nægilega stórum
skömmtum fyrstu sjúkradagana hef ég ekkert tilfelli fengið, er þyngra
yeyndist en venjuleg tiltölulega létt hálsbólga, og um fylgikvilla var
i slikum tilfelluin ekki að ræða. Aftur á móti var það í einum stað úti
i sveitinni, að læknis var ekki leitað til skarlatssóttarsjiiklings, fyrr en
ffleira en vika var liðin frá byrjun veikinnar; komu þar 3 tilfelli á
sama bænum, og reyndist mildu erfiðara að lækna þau með pensilín-
gjöf en þar, sem byrjað var að gefa pensilín strax.
Kópaskers. í febrúar 4 tilfelii á Raufarhöfn, öll í sömu fjölskyldu.
i'ékk ég ekki að vita af sjúkdómnum, fyrr en nokkrum vikum eftir að
fyrsta barnið veiktist, enda þótt foreldrunum og skólastjóra barna-
skólans væri ijóst, hver sjúkdómurinn var. Voru börnin í skólanum,
Þar til þau smátíndust í rúmið. Kom þetta þó ekki að sök, en heimilið
var einangrað, undir eins og ég frétti af sjúkdómnum.
Rreiðabólsstaðar. 10 ára piltur fékk 40° hita og scarlatiniform út-
úrot. Tel hæpið, að um skarlatssótt hafi verið að ræða, en lét þessa
þó getið með athugasemd á septemberskýrslunni.
Vestmannaeyja. Gerði vart við sig í öllum mánuðum ársins nema
desember (ekki heldur skráð í júní). í janúar var hún útbreiddust,
mjög væg og erfitt að hafa hendur í hári hennar, því að fólkið hélt,
um kverkasldt væri að ræða og leitaði ekki læknis, fyrr en eftir-
köst gerðu vart við sig. Hefur pensilín reynzt ágætlega við eitlabólgu
a hálsi og öðrum eftirköstum. Eru mestu vandræði að geta ekki ein-
angrað börn með veikina á sóttvarnarhúsi. Annars eru sjúklingar
einangraðir eftir föngum í heimahúsum, þegar veikin er uppvís.
Keflavíkur. Grunur var á um 2—3 tilfelli (16 tilfelli skráð), en ekkert
úreiddist veikin út, og er ég heldur á því, að ekki hafi verið um þessa
Veiki að ræða.
16. Kikhósti (tussis convulsiva).
Töflur II, III og IV, 16.
sjúklingafjöldi 1940—1949:
1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947 1948 1949
„ 290 4413 39 7 129 1556 15 „ 37
48 5 „ 2 11
Sjúkl.
Dánir
99
99