Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 202
200
Blönduós. Mjólkurframleiðsla hefur aukizt mjög hin síðari ár, síð-
an þurrmjólkurvinnsla var sett upp á Blönduósi, og hefur borizt
miklu meiri mjólk en gert var ráð fyrir, er búið var stofnað. Á nokkr-
um bæjum hafa verið reist mjög vönduð fjós fyrir 10—30 gripi og
mikið af nýju landi verið brotið til ræktunar, enda er ræktanlegt
land hér mjög víðáttumikið í flestum sveitum.
Sauðárkróks. Mjólkurframleiðsla hefur aukizt til muna, enda voru
flestir bændur sauðlausir síðast liðið ár og reyndu þar af leiðandi
að fjölga kúnum. Starfsemi mjólkursamlagsins var svipuð og áður.
Nýja mjólkursainlagshúsið er enn þá í smíðum. Á Sauðárkróki er
alltaf talsvert af kúm, svo að ýmsir hafa mjólk fyrir sig og eru jafn-
vel aflögufærir.
Ólafsfi. Enn auka bændur í sveitinni mjólkurbúin, en mikil mjólk
er flutt frá mjólkursamlagi KEA á Akureyri, og er sú mjólk pasteuri-
seruð.
Akureyrar. Ekki hægt að selja neina flöskumjólk á árinu vegna
flöskuskorts. Á árinu 1949 ltomu inn í Mjólkursamlagið samtals
7176218 lítrar mjólkur. Meðalfitumagn þessarar mjólkur var 3,617%.
Mesta fitumagn var í júlí 3,846%. Minnsta fitumagn var í janúar
3,398%. Af mjólk þessari reyndust vera í 1. og 2. hreinlætisflokki
96,75%, í 3. hreinlætisflokki 2,85% og í 4. hreinlætisflokki 0,40%.
Til beinnar neyzlu fóru 2418332 lítrar mjólkur, 192705 lítrar af rjóma,
195278 kg af skyri, 94710 kg af smjöri og 164260 kg af mjólkurosti.
Grenivíkur. Eins og undanfarin ár er mjólk seld til Ákureyrar,
alltaf þegar hægt er að koma henni landleiðina. Síðast liðið ár voru
seldir um 330000 1 úr Grýtubakkahreppi, en árið áður 350000. Stafar
minnkunin að mestu af vorharðindum, en nokkuð af kúadauða. Gren-
víkingar framleiða nóga mjólk handa sér og auk þess nokkuð af
mjólk til Akureyrar.
Seyðisfi. Of lítið er framleitt af mjólk fyrir bæinn og þar af leiðandi
of lítil mjólkurneyzla. Um 65 kýr munu vera í bænum, og frá einu
heimili í hreppnum (Dvergasteini) er seld hér mjólk. Kúabúið hefur
um 20 kýr, en ekki kemur öll nytin í bæinn, þvi að í heimilinu eru
6—8 manns. Önnur mjólkursala er hér ekki. Mjólkurmjöl fæst hér í
búðum, en lítið hygg ég notað af þvi. Rjómi og skyr flyzt hingað dá-
lítið frá Alcureyri og Húsavík.
Nes. Neyzlumjóllc oftast nægileg, en skortur á mjólkurafurðum.
Væntanlega lagast ástandið, þegar hið vandaða kaupfélagshús, sem í
smíðum er, verður til búið til notkunar, enda ekki vanþörf á bættri
meðferð, sem þar að auk er réttlætiskrafa, þar sem verðið er hið
sama sem i Reykjavík.
Vestmannaeyja. Fluttir voru um 200000 1 af nýmjólk hingað frá
Reykjavík. Eyjarnar eiga að geta orðið sjálfbjarga í þessum efrium
og verkefni nóg fyrir framsýna dugnaðar- og atorkumenn. Aðalkua-
búið er rekið af bænum. Mjólkurverð hátt, en búið rekið með halla.
Aðflutt rnjólk frá Reykjavík er seld með sama verði. Mjólk má heita
nægjanleg, ef mjólkurflutningar ganga greiðlega, en í rysjóttu veðn
skammdegismánuðina vilja þeir stundum teppast.