Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Qupperneq 135
133
borð og öll skjöl, er varðaði héraðið, síðan samið lista yfir það, sem
er í minni vörzlu og sent oddvita afrit. Er ég gerðist svo djarfur að
nema þetta á brott, reis upp kurr meðal sveitunga, og taldi hrepps-
nefndarmaður, sem stóð mig að þessu, mig skorta heimild til. Síðan hef
ég eigi farið ránsferð í bústaðinn. En betra væri, að einhver hirti
sængurföt, lök o. fl., sem liggur þar í bendu á gólfinu.
Hólmavíkur. Lokið við íbúð læknis í hinum nýja læknisbústað, og
fluttist ég í hin nýju húsakynni í nóvember. Sjúkraskýlishæðin ekki
fullgerð enn þá, auk þess sem enn vantar innanstokksmuni alla. Er
það mjög bagalegt, en efnisskortur hamlar framlcvæmdum. Gerðar
voru ráðstafanir til öflunar röntgentækja í sjúkraskýlið, en virðist
*tla að stranda á gjaldeyrisleyfi.
Hvammstanga. Sjúkraskýlið starfrækt á sama hátt og áður. Nokkrar
lagfæringar og endurbætur voru gerðar á læknisbústaðnum, fengin
eldavél (AGA koksvél) og komið fyrir baði og vatnssalerni. Var þess
full þörf, því að áður fyrirfannst hvorki eldavél að gagni — varð að
elda á oliuvél — né hreinlætistæki í húsinu.
. Blönduós. Sjúkrahúsið var rekið með sama hætti og undanfarið.
Á miðju ári var ráðin þangað sem hjiikrunarkona frú Anna Jóns-
dóttir Reiners, sem dvalizt hefur undanfarin 14 ár á Þýzkalandi og
var gift þar. Áður hafði ég um eins árs skeið haft danskar hjúkrunar-
konur. Það er með öllu ofvaxið einni hjúkrunarkonu að starfa við
sjúkrahúsið, en á þessu fékkst mikil bót, er hin nýja Ijósmóðir tólc
við störfum, því að hún er þar til aðstoðar, tekur frívaktir hinnar
föstu hjúkrunarkonu og er vökukona oftast, er þess þarf með. Hefur
uni þetta verið ágæt samvinna með þeim nöfnunum. Lyfjabúð mína
flutti ég seint á árinu í nýtt húsnæði, allmiklu betra og rýmra en hið
fyrra. Er það í nýju húsi við sömu götu og sjúkrahúsið og læknis-
bústaðurinn og innréttað sérstaklega eftir minni fyrirsögn. Hygg ég
Það varla ofmælt, að það sé nú fullkomnasta lyfjabúð af þeim, sem
héraðslæknar reka sjálfir, enda hef ég haft sama manninn þar við
ufgreiðslu í 8 ár, og getur fólk fengið afgreiðslu þar, þó að ég sé ekki
beima, því að lyfjabúðin er opin frá kl. 10 f. h. til 6 e. h. hvern virkan
dag, nema á laugardögum til hádegis á sumrum og kl. 4 e. h. á vetrum,
°g er fylgt um það fyrirmælum um lokun sölubúða hér á staðnum.
Sauðárkróks. Sjúkrahúsið var rekið með sama fyrirkomulagi og
siðast liðið ár. Er það orðið allt of litið og óhentugt. Byrjað er á teikn-
|Ugu nýs sjúkrahúss, en fjárfestingarleyfi er enn þá ófengið. Sjúk-
hngafjöldi er aðeins minni en síðast liðið ár, en legudagar mun fleiri.
Margir nutu Ijóslækninga á sjúkrahúsinu, ambúlant. Auk röntgen-
rannsókna á sjúklingum sjúkrahússins og nokkrum öðrum, er stöð-
llgt koma til eftirlits, voru 57 gegnlýstir og 20 röntgenmyndaðir. Hóp-
skoðun fór einnig fram í sambandi við komu berklayfirlæknis. Ambúl-
aut loftbrjóstaðgerðir -f- gegnlýsingar voru gerðar 36 sinnum á 3
sjúklingum.
Ólafsfi. Sjúkraskýlið ekki starfrækt. Skrifstofur bæjarins í hús-
næðinu.
Akureyrar. Byggingu hins nýja sjúkrahúss Akureyrar hefur miðað