Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 242
240
Iövrigt skal meddeles, at Hr. M. ved sin Henvendelse her ikke er
undersögt specielt med Erklæringsudstedelse for Öje, og ovenstaaende
er Resultatet af min Undersögelse ved Konsultationen den 26.7. d.A.“
Staðgöngumaður tryggingaryfirlæknis, . .. (starfandi læknir í
Reykjavik), telur í vottorði, dags. 18. febr. 1948, að um örorku stefn-
anda sé „ekkert hægt að dæma eins og stendur“, enda telur, að
„nauðsyn beri til rannsóknar í Lsp. sem fyrst. Með tilliti til þess
þykir rétt, að umsækjandi verði talinn 50% öryrki, en 100% öryrki,
meðan rannsókn fer fram í sjúkrahúsinu“. Páll Sigurðsson trygging-
aryfirlæknir metur örorku stefnanda 75—80% í vottorðum, dags. 19.
maí 1949 og 5. júní 1950, en telur endurmat nauðsynlegt í júní 1951.
í skýrslu frá Bifreiðaeftirlitinu varðandi mál þetta, dags. 22. nóv.
1949, segir svo:
„Samkvæmt dagbók Bifreiðaeftirlitsins þann 6. febrúar 1945 voru
skoðaðar 10 bifreiðar frá Strætisvögnum Reykjavíkur, þar á meðal
strætisvagninn R - 1008, er var í mjög slæmu ásigkomulagi, sérstak-
lega var áberandi, að gasloft frá vélinni barst inn í bílhúsið (yfirbygg-
inguna) um óþétt gólf, og einnig vegna þess, að útblástursrör frá vél
náði ekki nægilega langt aftur. Þann 7. marz s. á. var strætisvagninn
R- 1003 (sic) tekinn úr umferð vegna slæms ásigkomulags. Þann 10.
marz er svo strætisvagninn R- 1008 skoðaður aftur, og er þá talinn
nothæfur, þ. e. ástand má ekki versna.
Bifreiðarstjóri með nefndar bifreiðar mun hafa verið E. K. V.
M.-son.“
Af hálfu Strætisvagna Reykjavíkur er þessa getið m. a. í yfirlýs-
ingu, dags. 24. jan. 1950:
„E. M-son hóf starf hjá Strætisvögnunum 6. okt. 1944 og hætti 19.
okt. 1945.
Hann ók R - 1008 frá 10. janúar 1945 til 20. marz sama ár og kvart-
aði aldrei um óþægindi vegna ólofts. R. - 1008 er dieselbíll, en af þeim
er eins og kunnugt er talsvert meiri olíustybba en af benzínvélum
... Engum vagnstjóra, sem ók R - 1008 á undan E. M-syni eða eftir,
varð neitt meint við það.“
Málið er lagt fyrir læknaráð á þá leið,
að óskað er umsagnar ráðsins um eftirtalin atriði:
„1. Verður vanheilsa stefnanda, er mál þetta fjallar um, talin senni-
leg afleiðing af starfi hans sem ökumanns hjá Strætisvögnum Reykja-
víkur ?
2. Ef svo er, hve mikil verður þá talin örorka stefnanda frá 1. janvíar
1946 að telja, þar með talin framtiðarörorka hans?“
Tillaga réttarmáladeildar unv
Álijktun læknaráðs:
Af gögnum þeim, sem fyrir liggja, verður ekki séð, að stefnandi
hafi nokkurntima orðið fyrir kolsýrlingseitrun.1) Engar rannsóknir
1) Ósamræmi er i hinu íslenzka heiti efnisins CO i vottorðum læknanna; hér
að framan kallað kolsýringur.