Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 23
21
hafa farið í eyði, verið sú, að vantað hefur kvenhjálp á heimilin. Þessi
sama hætta vofir enn þá yfir mörgum heimilum hér. Má ekkert bera
út af með þær manneskjur, sem fyrir eru, svo að ekki liggi við upp-
lausn.
Bakkagerðis. Nokkurn veginn kyrrstaða, hvað íbúafjölda snertir, og
gegnir það furðu um svo afskekktan stað á þessum fólksflutninga-
tímum.
Scyðisfi. Fólksfjöldi mátti heita standa í stað. Brottflutningur fólks
er þó ekki stöðvaður.
Nes. Fólki fjölgar nú ár frá ári, bæði í kaupstaðnum og sveitunum,
eðlilega eftir barnkomu og manndauða.
Djúpavogs. íbúatala héraðsins stendur svo að segja í stað. Þó hefur
fækkað fremur í sveitunum, en aftur fjölgað í þorpunum, Djúpavogi
og Breiðdalsvík.
Breiðabólsstaðar. Óvenjumargt háaldrað fólk lézt á árinu, þar af 5 á
tíræðisaldri.
Stórólfshvols. Fyrsta árið um margra ára skeið, sem fólki hefur ekki
stórfækkað í héraðinu.
Eyrarbakka. Fæðingar með færra móti.
Selfoss. Fólki fjölgar hér á Selfossi, en stendur að miklu leyti í stað
1 sveitunum.
Keflavíkur. Fólksfjölgun í héraðinu talsverð. Mikið flyzt að af fólki,
ónkum til Keflavíkur, þar sem atvinnuskilyrði eru bezt. En auk þess
er nokkurt aðstreymi af fólki á aðra staði, t. d. í Njarðvikur, Sand-
gerði og Grindavík. Á öllum þessum stöðum eru hraðfrystihús og
utgerð í vexti og því næg atvinna allt árið. Manndauði er svipaður
°g á síðasta ári, barnkoma með eðlilegum hætti og ungbarnadauði
litill.
III. Sóttarfar og sjúkdómar.
Heilsufar á árinu mun yfirleitt mega teljast hafa verið í meðallagi,
i sumuni héruðum öllu betra, en í öðrum nokkru lakara. Af sóttum
Þeirn, sem gera sér verulegan áramun, létu nú að sér kveða inflú-
enza og hettusótt, sem fóru víða yfir, þó að ekki gætu heitið skæðar,
svo og mænusótt, eða afbrigði hennar í líki Akureyrarveiki, sem eink-
gætti á Norðurlandi og Vestfjörðum, þó að víðar styngi sér niður.
~>a gerði og skarlatssótt með meira móti vart við sig. Almennur mann-
oauði varð aftur í ár minni en dærni eru til áður, eða 7,9%0 lands-
Juanna (minnstur áður á síðast liðnu ári, 8,1%0), og munu fáar þjóðir
státa af lægri dánartölu.
Læknar láta þessa getið:
Eafnarfi. Heilsufar í meðallagi.
Borgarnes. Farsóttir voru þetta ár mjög atkvæðalitlar og meinlausar.
. Bhðardals. Heilsufar með betra móti, enda þótt nokkuð bæri á
lnflúenzu í maí og júní.
Keykhóla. Heilsufar má teljast í meðallagi.