Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 237
235
Það, sem að framan greinir, gefur mér tilefni til að hugleiða, hvort
ekki sé of mikið að því gert að krefjast í öllum tilfellum hvors tveggja,
farsóttaskeytis og skýrslu, af öllum héraðslæknum. Er slíkt reyndar
alger óþarfi, ef póstsamgöngur við Reykjavík eru sæmilega greiðar,
eins og þær mega undantekningarlaust heita úr öllum héruðum í ná-
grenni Reykjavikur og reyndar úr langflestum héruðum yfir sumar-
tímann. En þá er verr gert en ógert, ef óþörf farsóttaskeyti tefja skil
á fullkomnum skýrslum og rugla ef til vill skýrslugerðina.
Fyrir því sting ég upp á til reynslu, að héraðslæknar felli ni.ður
sendingu farsóttaskeytis, þegar svo stendur á um póstsamgöngur,
að telja má öruggt, að farsóttaskýrsla geti verið komin til Regkja-
víkur fgrir lok þess mánaðar, sem þeim ber að hafa lokið samningu
hennar. En þá má það heldur ekki bregðast, að þeir afgreiði skýrsl-
una í tæka tíð, eins og' fyrirskipað er og helzt af öllu fyrr. Þar, sem
héraðslæknir er einn í héraði, á honum ekki að vera neitt að vanbún-
aði að gera skýrslu sína þegar í stað, að hverjum mánuði loknum.
Ef þetta fyrirkomulag gefst eins vel og ég vildi mega eiga von á,
mun ég hlutast til um, að gildandi reglum um skil á farsóttaskýrsl-
um verði breytt til samræmis við það.
8. des. 1952.
Þá er ársskýrslur (yfirlitsskýrslur) héraðslækna eru athugaðar,
ber nokkuð á því, einkum þegar í hlut eiga héraðslæknar, er lengi
sitja í sama héraði, að umsagnir um sömu atriði verða að heita má
samhljóða endurtekningar ár eftir ár og' þá fremur ófróðlegar. Er
þetta reyndar ekki tiltökumál, þegar héraðslæltnar gera sér að reglu
að drepa jafnan á öll atriði, er yfirleitt ber á góma í útgefnum Heil-
brigðisskýrslum, sem þeim hefur verið bent á að hafa til hliðsjónar
um kaflaskiptingu skýrslna sinna. Með skírskotun til þess, er nú
hefur verið sagt, er því beint til héraðslækna, einkum þeirra, er lengi
gera skýrslur fyrir sama hérað, að binda sig ekki einstrengingslega
við þá reglu að ræða jafnan í hverri skýrslu öll heilbrigðisatriði, er
til greina koma, án tillits til þess, hvort nokkuð frásagnarvert er
af þeim að seg'ja eða ekki, en hafa heldur hinn háttinn á að taka
til skiptis fyrir nokkur einstök atriði, og gera þá hverju atriði að
sama skapi fyllri skil. Þegar litið verður aftur um nokkur ár, mun
á þenna hátt verða skráð ýtarlegri heilbrigðismálasaga hlutaðeigandi
héraðs, auk þess sem Heilbrigðisskýrslur verða drjúgum læsilegri.