Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Síða 193
191
ónothæft. Af 12 sýnishornum af vatni og sjó ætluðum til baða reynd-
ust 4 sæmileg, en 8 ónothæf. Uppþvottavatn, Reykjavtk: Sýnishorn
tekin til rannsóknar á uppþvotti á veitingastöðum. Tekin og metin
af borgarlækni. Vatn, Akureyri: Rannsakað í sambandi við athuganir
próf. Júlíusar Sigurjónssonar, sbr. Heilbrigðisskýrslur 1948, bls. 230—-
232. Vatn, Siglufirði: Rannsakað í sambandi við fyrirhugaða stækkun
á vatnsveitu Siglufjarðar. Vatn, Keflavík: 2 sýnishorn sundlaugar-
vatns. Reyndust sæmileg.
I tilefni af kvörtun héraðslæknis i Reykjavík, i Heilbrigðisskýrslum
1948 (bsl. 139), yfir því, að „Rannsóknarstofa Atvinnudeildarinnar“
sé seinvirk og svör berist svo seint frá henni, að þau komi að litlum
eða engum notum, vil ég (þ. e. gerlafræðingur Sigurður Pétursson)
taka fram eftirfarandi: Sýnishorn þau af mjólk, mjólkurvörum og
neyzluvatni, sem héraðslæknir í Reykjavík liefur sent til gerlarann-
sóknar, hafa alltaf verið afgrcidd tafarlaust, enda hefur læknirinn
aldrei kvartað yfir því, að svör frá mér komi seint.1)
Læknar láta þessa getið:
Hafnarjj. Sýnishorn tekin til rannsóknar af mjólk og matvælum og
send til Atvinnudeildar Háskólans, sein rannsalcaði þau.
ísafj. Vegna coligerla, sem fundust í vatni bæjarbúa, var rannsakað
vatn úr öllum vatnsbólum, á Eyrarhlíð, á Seljalandsdal og Tungudal,
en þau liggja öll ofar allri mannabyggð, og fundust coligerlar í þcim
öllum; verður ekki við gert, enda talið hættulaust vegna legunnar.
Sauðfjárslátrun hefur verið mjög lítil undanfarin ár vegna fjár-
skiptanna. Slátrun stórgripa fer fram á öllum tímum árs og því erfitt
að hafa ávallt opið sláturhús til þess að fullnægja hinni nýju slátur-
húsa- og kjötmatsreglugerð, en hert var á eftirlitinu í samráði við
allar kjötsölubúðir, og venjast menn fljótt af því að senda kjöt af
sjúkum gripum eða sjálfdauðum á markað, þegar búið er að gera
nokkra vafasama skrokka afturreka.
Blönduós. Matvælaeftirliti er ábótavant, eins og við má húast. Sam-
kvæmt gildandi fyrirmælum mun dýralæknir eiga að skoða allar kýr
á sölusvæðum mjólkursamlaga, en slíkt eftirlit hefur aldrei verið
framkvæmt hér, enda sést hér aldrei dýralæknir. Héraðslæknar eiga
að vísu að gegna dýralæknastörfum, hver í sínu héraði, en varla er
hægt að ætlast til, að héraðslæknirinn i þessu héraði bæti því á sig
að skoða 200—300 fjós og 2000 nautgripi. Hitt virðist aftur á móti
ekki frágangssök að framfylgja gildandi reglum um eftirlit með því
að senda hingað einhvern dýralækni í eftirlitsferð, t. d. þann, er situr
að Keldum og hefur sérstaka stúlku til að framkvæma flesta nauðsyn-
lega laboratoriumvinnu.
Vcstmannacyja. Minna en þyrfti. Heilbrigðisfulltrúi er á verði á
matsölustöðum og gerir héraðslækni aðvart, ef út af ber.
1) Hann mun og ekki heldur hafa átt við það.