Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Side 218
216
barnaveikiónæmisaðgerðum um sumarið, en ljósmæður eru litt fáan-
legar til bólusetninga.
Hvamstanga. Féllu niður í Bæjar- og Staðarlireppum.
Blönduós. Bólusetningar hafa að miklu leyti fallið niður nema á
fermingarbörnum, enda er ekki hægt að ætlast til þess, að ein ljós-
móðir framkvæmi bólusetningu í 7 hreppum og fari til þess nokkur
hundruð kílómetra án þess að henni sé lagt til ókeypis farartæki.
Sauðárkróks. Bólusetning fór fram í öllum umdæmum, nema í Skef-
ilsstaðaumdæmi, en þar hefur venjulega verið bólusett aðeins annað
hvert ár.
Ólafsfí. Bólusetning fór fram og árangur góður.
Grenivíkur. Bólusett voru eldri börnin. Kom bólan aðeins út á einu
þeirra. Fyrir fórst að bólusetja þau yngri. Fyrst var því frestað vegna
ótíðar, en síðar mun gleymska hafa valdið. Verður séð um, að bólu-
setning verði framkvæmd, undir eins og bóluefni kemur.
Kópaskers. Bólusett var í öllum umdæmum héraðsins nema á Hóls-
fjöllum, en þar munu engin börn hafa verið til að bólusetja. Ljós-
mæðrum virðist vera misjafnlega sýnt um bólusetninguna, ef dæmt
er eftir árangri.
Seyðisfí. Bæði í kaupstað og hreppi féllu bólusetningar niður. Hér-
aðslæknir fjarverandi.
Nes. Bólusettur var hér fjöldi barna og unglinga með mjög góðum
árangri. Nokkur börn urðu talsvert veik. Síðast liðið ár hætti ég við
bólusetningu vegna fregna frá nágrannalækni um alltof sterkt bólu-
efni.
21. Skoðunargerðir eftir kröfu lögreglustjóra.
Frá Rannsóknarstofu Háskólans hefur borizt eftirfarandi skýrsla
um réttarkrufningar, sem þar voru framkvæmdar á árinu 1949:
1. 17. janúar. J. Ó. Á-son, 24 ára. Var að sópa snjó á flötu þaki, er hann féll inn
um einn þakgluggann niður á steingólf, fallið um 3 m hátt. Andaðist 3Vz
klst. síðar. Við krufningu fannst mikið brot á kúpubotni og mikil blæðing
milli basts og beins i hnakka vinstra megin. Enn freinur var heili allmikið
marinn að neðanverðu framanvert. Ályktun: Brot á höfuðbeini og mar a
heila hefur leitt manninn til dauða.
2. 5. febrúar. Þ. A. S. Þ-son, 28 ára. Fannst liengdur i kjallara lögreglunnar
í Rvík. Maðurinn hafði lengi verið mjög drykkfelldur, enga atvinnu haft
og nánast heimilislaus. Var hirtur ósjálfhjarga af ölæði og látinn í lögreglu-
kjallarann hinn 4. febrúar, en um nóttina hengdi hann sig í nærbol sinum
með því að binda hann i grindurnar á fangaklefanum. Við likskoðun og
krufningu fannst hengingarrák á hálsi. Mikil fitulifur. I blóði 1,77%0 alkóhól.
3. 16. febrúar. E. G-dóttir, 58 ára. Varð fyrir bíl og andaðist nóttina eftir.
Við krufningu fundust 11 rif brotin hægra megin. Brot á symphysis pubis og
efra kjálka hægra megin. Hjarta var stækkað (408 g) vegna stækkunar og auk-
innar þykktar á vinstra ventriculus. Bæði nýru voru lítil (85 g hvort).
Mikroskopisk arteriolosclerosis. Þá fannst einnig adenoma í skjaldkirtli,
mikroskopiskt adenoma parenchymatosum (toxicum). Drep i brisi og æðar
þar mjög þykkveggjaðar og sumar lokaðar. Ályktun: Það, sem fannst í hjaita
og nýrum, sýnir tvímælalaust, að konan hefur haft háan blóðþrýsting. 1
skjaldkirtli fannst hnútur, sem getur hafa átt sinn þátt í þvi, að konan haíði
verið óeðlilega viðbrigðin. Banameinið virðist aðallega hafa verið shock-
verkun vegna beinbrotanna.