Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 76
74
Kópaskers. Tannskemmdir eru eflaust algengasti kvillinn. Þá koma
gigtarsjúkdómar, svo og alls kyns taugaveiklun. Sjúltdómar í melt-
ingarfærum eru algengir.
Vopnajj. Eins og áður tannskemmdir, smámeiðsli, ígerðir og kaun,
blóðleysi, taugaveiklun, húðkvillar og svo alls konar andleg og líkam-
leg menningarkröm, sem kölluð er vítamínskortur.
Seijðisfj. Kvefsótt í ýmsum myndum enn tíðasti kvillinn. Tann-
verkur ekki eins algengur og áður, þó að tannskemmdir séu enn mikl-
ar. Slappleiki samfara taugaveiklun, gigt og meltingartruflanir eru þeir
kvillar, sem mest ber á.
Nes. Eins og áður eru tannskemmdir mjög algengar. Hef ég séð 3 ára
börn með holskemmdar tennur. Miklu fátíðari, en þó algengir kvillar,
eru: gigt alls konar, taugaveiklun, meltingarsjúkdómar, húðsjúkdóm-
ar, háls-, nef- og eyrnasjúkdómar, blóðleysi, bólgur og ígerðir, ásamt
smámeiðslum.
Búða. Auk farsótta (kvefs og kverkabólgu) eru tíðastir kvillar
tannskemmdir, gigtarsjúkdómar ýmsir og meltingartruflanir.
Djúpavogs. Algengasti kvilli mun vera kvefið, og mun vera erfitt að
reikna allt það vinnutap, sem það veldur. Þar næst koma tann-
skemmdir, ígerðir og gigtarsjúkdómar alls konar.
Vestmannaeyja. Taugaverkir og taugaveiklun eru áberandi tíðir
kvillar sem áður, einkum í konum. Húshjálp engin að verða, kon-
urnar einar með börnin. Bila af ofþreytu og erfiði. G,anga oft van-
heilar (með æðahnúta og fótasár) til verka. Unglingsstúlkur allar í
flökun og netagerð, sækja dansskemmtanir og bíó í frístundum.
Stórólfshvols. Auk farsótta munu helztu kvillar hér vera gigt í ýms-
um myndum, blóðleysi, taugaveiklun og tannskemmdir, sem enn þá
er mjög tíður kvilli, en virðist þó fara heldur minnkandi.
Eyrarbakka. Auk farsótta taugaveiklun, gigtarsjúkdómar, melt-
ingarkvillar og þrálátir húðsjúkdómar.
2. Anaemia perniciosa.
Flateyrar. 2 tilfelli.
Blönduós. 1 fimmtugur bóndi fær öðru hverju lifrarinndælingar.
Heldur með því fullri fótavist, en er lítt fær til áreynslu.
Grenivíkur. 1 gamall sjúklingur, sem fær við og við lifrarlyf.
Búða. Sama kona sem áður. Fær að staðaldri neo-hepatex með B12-
Er við ágæta heilsu og vinnur fullum fetum.
3. Anaemia simplex.
Bíldudals. Þrátt fyrir fjöldamargar blóðrauðamælingar að beiðni
fólks, sem telur sig hafa verið blóðlítið, hef ég ekki orðið þessa kvilla
var, nema þar sem verið hafa á ferðinni illkynja æxli, miklar
klímakteriskar blæðingar og annað þess háttar.
Flateyrar. Algeng, einkum seinna hluta vetrar.
Blönduós. Ekki svo sjaldgæf, og nokkrir, sem eru með achyha
chronica.
Vopnafj. Ásamt/eða asthenia, neurasthenia, avitaminosis 24 til-
felli.