Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1949, Blaðsíða 290
288
Eftir að hafa kynnt mér sjúkrasögu M. (sbr. sjúkraskrá St. Jóseps-
spítala) og athugað nokkuð núverandi sjúkdómsástand hennar, taldi
ég óráðlegt, að svo stöddu, að hún yrði flutt úr húsinu með valdi og
gegn vilja hennar, þar eð sýnt var, að það myndi valda henni mjög
mikilli geðshræringu. En hvers konar meiri háttar geðshræringar og
áhyggjur geta haft hin alvarlegustu og óheillavænlegustu áhrif á
sjúkdómsástand og líðan sjúklinga, sem haldnir eru af þeim sjúk-
dómi, sem hér um ræðir.“
í sama réttarhaldi (5. september) tekur hann einnig fram, „...
að flutningur á konu gerðarþola gegn vilja hennar geti haft hinar
alvarlegustu afleiðingar fyrir heilsu hennar, en ekki sé gott að segja
um, hverjar þær afleiðingar geti orðið, ekki útilokað, að líftjón geti
af hlotizt, eða máske alvarlegar geðtruflanir, þótt líkur fyrir þessu
muni ekki vera miklar nú sem stendur. Hann telur ekki líkur til, að
hætta samfara útburði geti verið mismunandi mikil.“
Málið er lagt fyrir læknaráð á þá leið,
að óskað er álits ráðsins „... um fram komin læknisvottorð, og sér-
staklega um það atriði, hvort telja megi hættu á því, að útburður á
M. G-dóttur, .. .götu .. ., geti vegna sjúkdóms þess, sem vottorð þessi
telja hana haldna, balcað henni líftjón eða alvarlegar geðtruflanir.
Tillaga réttarmáladeildar um
Áhjktun læknaráðs:
Af þeim upplýsingum, sem fyrir liggja, vottorðum læknanna og
umsögnum þeirra um vottorð sín fyrir réttarmáladeild, telur lækna-
ráð sannað, að M. G-dóttir sé haldin alvarlegum sjúkdómi (háþrýst-
ingi etc.). Hins vegar telur ráðið nefnda lækna ekki hafa fært rök
að því, að útburður á nefndri M. G-dóttur sé liklegur til að baka
henni líftjón eða alvarlegar geðtruflanir.
Greinargerð og ályktunartillaga réttarmáladeildar, dags. 24. okt.
1951, staðfest af forseta 30. s. m. sem álitsgerð og úrskurður lækna-
ráðs.
Málsúrslit: Með úrskurði fógetaréttar Reykjavíkur 14. desember 1951 var út-
burðarkrafa borgarstjórans i Reykjavik f. h. Reykjavikurbæjar tekin til greina.
Málskostnaðar var ekki krafizt, og kom hann því eklti til álita.
10/1951.
Sýslumaðurinn i Skagafjarðarsýslu hefur með bréfi, dags. 31.
október 1951, samkvæmt úrskurði kveðnum upp i aukaþingi Skaga-
fjarðarsýslu s. d., óskað umsagnar læknaráðs í barnsfaðernismálinu:
E. R. F. S-dóttir gegn H. S-syni.
Málsatvik eru þau,
sem greinir í eftirfarandi læknisvottorðum:
1. Vottorð héraðslæknisins i ..., dags. 27. september 1951, svo-
hljóðandi: